Þrátt fyrir að sigurinn hafi verið öruggur í lokin var leikurinn hnífjafn fram á síðustu mínútur, en Ísland fékk ótrúlegt framlag frá Söru Rún, sem skoraði 33 stig og bætti við 7 fráköstum og 5 stoðsendingum.
„Þetta var bara nánast jafn á öllum tölum. Liðin skipust á forystu, komast 3-4 stigum yfir á víxl, en svo small sóknarleikurinn. Sara náttúrulega tók hvílíkt af skarið og við reyndum að finna hana með boltann og láta hana keyra á körfuna. Bara fáránlega góð hér í dag.“

Barátta íslenska liðsins á báðum endum vallarins skilaði þeim mörgum sóknarfráköstum og mörgum stoppum í vörninni, en þær lentu líka í bullandi villuvandræðum. Fannst Benna halla á Ísland í dómsgæslunni, eða var þetta bara eðlilegt miðað við ákefðina í leik Íslands?
„Örugglega bara bæði. Ég var ekkert alltaf sáttur við þessa dóma og villufjöldinn frekar ójafn um tíma. En svona er þetta bara, eflaust vorum við að brjóta aðeins meira en þær. Ég fór að hafa smá áhyggjur þegar Hildur fékk var komin í villuvandræði því það gekk vel með hana inn á og við vorum í miklum plús þegar hún spilaði. En aðrar stigu upp á meðan, bara geggjað.“
Landsliðshópur Íslands er ekki reynslumikill, aðeins fjórir leikmenn af tólf í dag sem eiga yfir 10 landsleiki. Hildur Björg sú leikjahæsta með 37. Það eru ákveðið kynslóðaskipti í gangi hjá íslenska landsliðinu?
„Það er búið að vera það. Það er að koma kynslóð sem við höfum gríðarlega mikla trú á og ég hef sagt það áður. Við höfum alveg verið óhræddir við að taka ungar stelpur inn í A-landsliðið og gefa þeim bæði tíma með liðinu og smá tíma inni á vellinum. Þetta er framtíðin. Í fyrra vorum við með yngsta landsliðið í Evrópu og mér þætti það mjög líklegt að við séum það ennþá. Þannig að sigur hérna gefur þessum unga hóp alveg gríðarlega mikið.“

Sigurinn vissulega mikilvægur, bæði fyrir andann í hópnum og stöðuna í riðlinum, en það var þó sennilega enginn í húsinu sem þráði sigurinn jafn heitt og þjálfarinn.
„Ef ég tala bara fyrir sjálfan mig þá held ég að mig hafi aldrei, á mínum langa ferli, langað jafn mikið í einn sigur og þennan hérna í dag. Ég held að ég hafi bara aldrei verið jafn „tense“ og fyrir leik eins og fyrir þennan. Mig langaði svo mikið að stelpurnar myndu taka þennan leik. Svo var bara bónus að taka hann með 10 og ná innbyrðis á þær og þriðja sætinu.“
Þrátt fyrir að Ísland lyfti sér nú upp af botni riðilsins, þá eru líkurnar á að komast áfram ekki miklar, enda Íslands í sannkölluðum dauðariðli, með Spán og Ungverjaland í algjörum sérflokki.
„Þetta er svo hárrétt hjá þér með riðilinn. Þetta spænska lið er náttúrulega bara eitthvað annað. Lið sem er að spila hörkuleiki við bandaríska landsliðið. Það er langt síðan að íslenska liðið náði sigri svo að þetta gefur okkur öllum svo mikið. Ekki síst KKÍ, sem er búið að dekstra við okkur allan þennan tíma sem ég hef verið með liðið. Umgjörðin frábær. Gott að fá sigur og fá smá verðlaun.“

Umgjörðin frábær segir Benedikt, og það var ekkert gefið eftir í dag þar sem blásið var til körfuboltaveislu fyrir leik, og eftir leik fylltist gólfið af ungum aðdáendum sem vildu taka myndir og eiginhandaráritanir.
„Umgjörðin þessi þrjú og hálft ár sem ég er búinn að vera hefur verið algjörlega tipp topp. Maður fær allt sem maður biður um. Það eina sem maður þarf að gera er að einbeita sér að þjálfuninni. Þetta eru ekki bara verðlaun fyrir leikmenn og þjálfarana, heldur alla sjálfboðaliðana sem standa að þessu. Eigum við ekki bara að tileinka þeim þennan sigur?“