Jóladagatal Vísis: Tískumyndband varð að tónlistarmyndbandi með vinsælustu hljómsveit landsins Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 5. desember 2022 07:01 Ellen Loftsdóttir stílisti leikstýrði myndbandi hljómsveitarinnar GusGus ásamt Þorbirni Ingasyni. 5. desember er runninn upp og við fögnum því með fersku lagi úr Jóladagatali Vísis. Lag dagsins er sannarlega ekki af verri endanum. Að okkar mati er um að ræða fullkomið mánudagslag til að koma okkur í rétta gírinn og hrista af okkur mögulegt slen eftir helgina.
Lagið Over með stórhljómsveitinni Gusgus er lag dagsins. Myndbandið var upphaflega hugsað sem tískustuttmynd fyrir Guðmund Jörundsson fatahönnuð og hugmyndin var að tvinna það saman við tónlist frá GusGus. „Þetta endaði svo í að gera heljarinnar tónlistarmyndband við lagið Over. Við vorum svo heppin að fá kvikmyndatökumanninn Karl Óskarsson með okkur í lið, sem er hokinn af reynslu á þessu sviði," sagði Ellen Loftsdóttir stílisti sem leikstýrði myndbandinu ásamt Þorbirni Ingasyni. Tökur á myndbandinu fóru fram á strandlengjunni milli Þorlákshafnar og EyrarbakkaHér má lesa umfjöllun Vísis um myndbandið frá árinu 2011.
Jóladagatal Vísis Tónlist Mest lesið Engin jólatráasala við Landakot þetta árið Jól Klassískt lag úr Mamma Mia! léttir lundina Jól Jólastöðin komin í loftið Jól Aðventan með Lindu Ben: Sörur og gjafaöskjur Jól Blúndukökur Birgittu slá í gegn Jól Helvítis jólakokkurinn: Djúsi kofareykt hangilæri með uppstúf, kartöflum og bökuðum lauk Jól Þrjátíu ára Söruhefð Jól Aðventan með Lindu Ben: Jólatré úr marengs Jól Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Jól Framandi en fljótlegir smáréttir um jólin Jól