Matur

Hel­vítis jóla­kokkurinn: Lamb og bearna­ise

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þættirnir Helvítis jólakokkurinn verða sýndir vikulega á Vísi og Stöð 2+ fram að jólum.
Þættirnir Helvítis jólakokkurinn verða sýndir vikulega á Vísi og Stöð 2+ fram að jólum. Stöð 2

Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, er kominn í jólaskap. Hann ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ fram á jólum.

Matreiðsluþátturinn Helvítis jólakokkurinn verður sýndur vikulega fram að jólum. Líkt og fyrri þættir Ívars eru þeir fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat. Annan þáttinn má sjá í spilaranum hér fyrir neðan en uppskriftirnar má finna neðar í fréttinni.

Klippa: Helvítis jólakokkurinn - Lamb og bearnaise

Lamb og bearnaise

Lýsing: Skothelt lambalæri með landnámshænu-bearnaise, bökuðum kartöflum og gulrótum og brokkolí með karamellusmjöri

Uppskrift:

  • Heiðalæri með beini frá Kjarnafæði
  • 300 ml rauðvín
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Hellið víni í steikarpott.
  2. Kryddið læri með salt og pipar og leggið í pott.
  3. Setjið lokið á og steikið í ofni á 180° í 90 mín eða þangað til kjarnhiti hefur náð 63°.
  4. Hvílið læri í 30 mín áður en það er borðað.

Noisette (karamellu smjör)

  • 500 gr smjör

Aðferð:

  1. Setjið smjör í pott og kveikið undir, sjóðið þangað til efsta lagið í pottinum verður karamellubrúnt.
  2. Slökkvið undir og færið til hliðar í 15 mín.
  3. Hellið fitunni af hratinu í annan pott og geymið.

Bakaðar kartöflur og gulrætur með noisette

  • 600 gr smælki kartöflur
  • 300 gr gulrætur
  • noisette smjör
  • salt
  • pipar
  • 20 gr graslaukur saxaður

Aðferð:

  1. Skerið kartöflur og gulrætur í helminga.
  2. Setjið í ofnskúffu og hellið noisette yfir, blandið með salti og pipar og bakið á 190° í 25 mín.
  3. Stráið graslauk yfir eftir eldun.

Broccoli með karamellusmjöri

  • 1 haus broccoli
  • Noisette
  • Salt
  • Pipar

Aðferð:

  1. Skerið broccoli í bita.
  2. Steikið upp úr noisette á pönnu í 2 mín og bragðbætið með salti og pipar.
  3. Setið lok á pönnu og hvílið í 5 mín.

Karamellu-Bearnaise sósa

  • 6 eggjarauður Landnámshænuegg
  • 300 gr noisette smjör
  • 1 msk essence
  • 1 tsk estragon
  • 10 ml vatn
  • Kjötkraftur
  • Pipar

Aðferð:

  1. Hitið noisette litillega upp í potti og þeytið eggjarauðurnar létt og ljóst í skál.
  2. Hellið smá vatni saman við ef blandan er of þykk.
  3. Hrærið noisette rólega saman við.
  4. Kryddið með pipar, krafti, estragoni og essence.

Tengdar fréttir








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.