„Við vildum að hann væri hluti af verkefninu, að hann myndi leggja sig fram fyrir Manchester United af því að hann er framúrskarandi leikmaður. Hann hefur frábæra sögu en núna er það allt í fortíðinni og við þurfum að horfa til framtíðar. Ég vil ekki eyða orku minni í svona lagað en ég gerði allt í mínu valdi til þess að færa hann nær liðinu vegna þess að ég met hans hæfileika,“ sagði Ten Hag við MUTV. Manchester Evening News birti í gær afrit af því sem Ten Hag hefur sagt við bresku pressuna nýlega um brottför Ronaldo frá félaginu.
„Ég vildi hafa hann hjá félaginu frá því ég kom og þangað til núna. Hann vildi fara, það var frekar augljóst. Þegar leikmaður vill ekki vera hluti af félaginu þá þarf hann að fara, það fer ekki á milli mála.“
Bæði Ronaldo og Manchester United komust að sameiginlegri niðurstöðu um að rifta samningi leikmannsins eftir að viðtal Ronaldo við Morgan gert opinbert. Aðspurður að því hvort það hafi verið ákvörðun Ten Hag, eða einhvers ofar í goggunarröðinni hjá Manchester United, að rifta samningi Ronaldo segir Ten Hag það hafi ekki einu sinni þurft að ræða það.
„Við þurftum ekki að ræða málið frekar. Það var var augljóst fyrir mér, Richard [Arnold, framkvæmdarstjóri United] og John [Murtough, yfirmann knattspyrnumála] að hann yrði að fara frá félaginu eftir viðtalið.“
Ten Hag segir að Ronaldo hafi aldrei talað við sig um að hann vildi yfirgefa félagið.
„Þetta viðtal sem hann [Ronaldo] fór í, sem knattspyrnufélag þá getur þú ekki samþykkt svona lagað. Það verða að vera afleiðingar og hann vissi alveg það yrðu afleiðingar. Áður en hann fór í viðtalið sagði hann ekkert við mig. Hann sagði aldrei við mig að hann vildi fara.“
Síðasta sumar voru ýmsir fjölmiðlar að greina frá því að Ronaldo vildi yfirgefa United í félagaskiptaglugganum. Ten Hag segir að Ronaldo vildi ekki yfirgefa félagið þá.
„Við töluðum saman í sumar. Hann sagði við mig þá að hann myndi láta mig vita eftir viku hvort hann vildi vera áfram eða ekki. Svo kom hann aftur og sagðist vilja vera áfram. Þangað til þetta viðtal var birt hafði ég ekki heyrt neitt annað,“ sagði Ten Hag og bætir við að hann hefði glaður vilja njóta krafta Ronaldo hjá Manchester United.
„Síðasta tímabil skoraði hann 24 mörk, hvað er það sem liðið okkar vantar? Okkur vantar mörk.“
Knattspyrnustjórinn hefur ekki talað við Ronaldo eftir að viðtalið umtalaða var gert opinbert en hann segist samt ekki hafa horn í síðu Ronaldo og væri meira en tilbúinn að ræða við hann síðar. Hollendingurinn segist ekki hafa verið í einhverskonar valdabaráttu við Ronaldo en Ten Hag krefst þess að allir hjá félaginu séu að róa í sömu átt.
„Til þess að knattspyrnufélag geti náð árangri þurfa allir áhrifavaldar innan félagsins að vera á sömu blaðsíðu og styðja hvorn annan. Það er eina leiðin til þess að félagið geti starfað og náð árangri,“ sagði Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United. Afrit af viðtalinu í heild má lesa með því að smella hér.
Ten Hag: "I wanted him Ronaldo to stay from the first moment until now. He wanted to leave - but before the interview, he never told me anything". 🔴 #MUFC
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) December 10, 2022
"In summer Cristiano said: I will tell you in seven days if I want to stay. Then he came back and said: I want to stay". pic.twitter.com/NFNG5FHDSA