Það er alls ekki gott fyrir líkamann að borða endalaus sætindi og þess vegna er gott að luma á nokkrum góðum uppskriftum að hollri óhollustu, sætum réttum sem svala sykurþörfinni en innihalda engan viðbættan sykur heldur eingöngu náttúrulega sætu eins og döðlur, hunang og fleira.
Dásamlegar kókoskúlur
Það er frábært að útbúa þessar dásamlegu kókoskúlur og eiga í ísskápnum.
Súkkulaðipönnukökur
Hver elskar ekki góðar pönnukökur? Þessar eru fullkomnar í helgar brunchinum..
Bananamúffur með súkkulaði
Fljótlegar og ljúffengar múffur sem tekur enga stund að útbúa.
Njótið vel!
Fylgið mér endilega á Instagram ef þið viljið hvatningu, hugmyndir að uppskriftum, æfingum o.fl.

Anna Eiríksdóttir skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu á Vísi. Hún starfar sem deildarstjóri hjá Hreyfingu og er eigandi vefsins annaeiriks.is sem býður upp á fjarþjálfun og heilsusamlegar uppskriftir.
Anna hefur þjálfað fólk í rúm 25 ár og er þáttastjórnandi æfingaþáttanna Hreyfum okkur saman sem notið hafa mikilla vinsælda hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Alla þættina má finna HÉR á Vísi.