Þær eru bestar léttklæddar Karl Lúðvíksson skrifar 6. janúar 2023 09:16 Léttklædd Blue Charm Nú sitja veiðimenn og veiðikonur yfir fjöðrum, krókum og öðru því sem þarf til að hnýta flugur fyrir veiðisumarið 2023.
Það er ótrúlega gaman að sitja og hnýta sínar eigin flugur, prófa nýjar aðferðir og kasta þeim síðan fyrir lax og silung. Að setja í fisk á sína eigin flugu gefur mikla ánægju og það ættu allir að eiga grunnsett til að hnýta í það minnsta nokkrar í boxið á hverju ári. Eitt af því sem undirritaður hefur lært af bráðum fjörtíu ára veiðireynslu er að sumar flugur, og þá sérstaklega sumar laxaflugur, veiða betur þegar þær er létt klæddar sem þýðir að þær eru hnýttar með minna efni en kannski venja er að gera. Veiðimeistarinn Ásgeir Heiðar kenndi mér þetta fyrir mörgum árum og það er ekki annað hægt að segja en að þetta virki vel. Það sem kannski gerir léttklæddar flugur veiðnari við ákveðnar aðstæður er að þær fara hraðar í gegnum yfirborðið og veiða þess vegna fyrr á réttu dýpi. Nú kann þetta að hljóma einkennilega þegar veiðimenn eru oft að nota hitch þar sem lax tekur flugurnar þegar þær fljóta á yfirborðinu, en þegar hann vill ekki taka hitch vill laxinn fá flugurnar aðeins neðar í vatnið. Það er stundum sagt að við þessar aðstæður sé hann latur í töku og það sé næstum því eins og það þurfi að mata hann. Nokkrar flugur sem er klárlega vert að nefna að prófa að hnýta léttklæddar má nefna Black and Blue, Collie dog, Green Brahan og Blue Charm. Prófaðu þína úppáhaldsflugu léttklædda við bakkann næsta sumar, það gæti verið líklegt til árangurs.
Stangveiði Mest lesið Hörku veiði í Vatnamótunum Veiði Ennþá vænir sjóbirtingar í Ytri Rangá Veiði Veiðin 2012: Aðeins 12 af 38 laxveiðiám með 100 laxa á stöng Veiði 66 laxar veiddust í opnunarhollinu í Vatnsdalsá Veiði Svona nærðu árangri í Þingvallavatni Veiði Haukadalsá og Straumfjarðará að verða uppseldar Veiði Öllum boðið í Hlíðarvatn á morgun Veiði Styttist í 100 laxa daga í Eystri Rangá Veiði Bestu veiðistaðir Elliðaánna Veiði Vinningshafar í Veiðikortaleiknum á Veiðivísi Veiði