Námskeið í veiðileiðsögn fyrir stangveiði Karl Lúðvíksson skrifar 9. janúar 2023 09:11 Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 4 ár boðið upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn bæði innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins.
Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem áhuga hafa á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra. Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu. Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum. Farið verður í tveggja daga ferð í Eystri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum. Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn. Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum. Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði. Námið er alls 130 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Eystri Rangár eða Hólsár. Kennslan hefst miðvikudaginn 15. Febrúar Leiðbeinendur eru: Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir Kristján Friðriksson, veiðimaður og dálkahöfundur Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur - veiðileiðsögumaður Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga Haraldur Eiríksson, Laxá í Kjós Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður Kristinn Helgason, Landsbjörg Sindri Hlíðar, Fish Partners Sigurður Héðinn, Siggi Haugur Sigurkarl Stefánsson, fuglafræðingur Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn ATH! Flest stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til þessa náms. Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða [email protected]
Stangveiði Mest lesið Góður gangur í Eystri Rangá Veiði Netaveiðiskugginn hvílir enn yfir vötnum Veiði Sjóbirtingsveiðin búin að vera góð fyrir austan Veiði Laxinn að taka á Bíldsfelli Veiði Kvennadeild SVFR heldur skemmtikvöld Veiði Fyrstu laxarnir komnir í Langá á Mýrum Veiði Veiðin í Hofsá er betri en í fyrra Veiði Laxveiði of erfið fyrir hjartað Veiði Pálmi Gunnars og félagar leigja Eldvatn Veiði Eru víða ónýttir möguleikar í vorveiði? Veiði