Tæplega 60 ár af Hótel Sögu eru liðin tíð. Þessa dagana er hópur iðnaðarmanna að breyta þessum 19 þúsund fermetrum í kennslustofur og skrifstofur. En ekki hvað síst í íbúðir fyrir rúmlega hundrað stúdenta í norðurenda hússins sem snýr að Þjóðarbókhlöðunni.
Íslenska ríkið fyrir hönd Háskóli Íslands og Félagsstofnun stúdenta festu kaup á hótel Sögu í desember 2021. Guðrún Björnsdóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar segir að þar af séu 27 prósent hússins, eða fimm þúsund fermetrar, í eigu Félagsstofnunar. Hundrað og ellefu 25 fermetra stúdíó íbúðir verða í húsinu.
„Þau hafa hér stúdíó íbúð með eldhúsaðstöðu og sér baðherbergi. Svo hafa þau aðgengi að sameiginlegri setustofu sem er á hverri hæð og sameiginlegu þvottahúsi sem er líka á hverri hæð. Þau hafa líka geymsluskápa niðri í kjallara,“ segir Guðrún.
Húsið verði mjög lifandi og ólíkt þeim stúdentagörðum sem fyrir væru.

„Nú erum við að koma hér inn í nýja hugmynd. Þar sem húsið er að hluta stúdentagarðar, að hluta þjónusta og mikil hreyfing á fólki inn og út. Þetta verður mjög spennandi samsetning og örugglega mjög gaman að eiga heima hérna,“ segir Guðrún.
Það er margt ógert og um 140 iðnaðarmenn eru þessa dagana að standsetja húsið að inna jafn sem utan. Engu að síður er stutt í að fyrstu íbúarnir flytji inn.
„Úthlutun er komin af stað og er kannski frekar langt komin. Fyrstu íbúar munu flytja hingað inn fyrri partinn í marsmánuði og við gerum ráð fyrir að flest allir séu fluttir hér inn seinna í sama mánuðinum,“ segir framkvæmdastýran bjartsýn. Félagsstofnun hafi tekist að fækka fólki á biðlista eftir húsnæði úr rúmlega þúsund í 4-500 á undanförnum árum og biðtíminn hafi styst mikið.
Kostnaður Félagsstofnunar við breytingarnar á húsinu er um milljarður og kostaður Háskólans um þrír milljarðar en kaupverðið var 4,9 milljarðar. Ýmsir kostir hótel skipulagsins á jarðhæðinni verða nýttir áfram og húsið verður opið almenningi.
„Hugmyndafræðin er sú að þessi hæð verði opin. Hér verður vísindasmiðja, veitingasala og ýmislegt annað. Þannig að það er líka horft til þess að fólk geti komið í húsið,“ segir Guðrún Björnsdóttir.