Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. febrúar 2023 11:08 Bandarískar herþotur skutu loftbelginn niður. Chad Fish via AP Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum. „
Þetta sýnist mér einfaldlega vera hluti af víðtæku njósnaprógrammi,“ sagði Friðrik Jónsson, formaður BHM og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum beðinn um að gefa álit á fljúgandi hlutum sem skotnir hafa verið yfir Bandaríkjunum- og Kanada síðustu daga. Einhverjar þjóðar? „Einhverjar þjóðar, langlíklegast að það sé Kína. Við vitum það náttúrulega að fyrsti loftbelgurinn sem þarna var skotinn niður, hann var frá Kína. Það er búið að finna og ná í leifarnar af honum,“ sagði Friðrik í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Fregnir af fyrsta loftbelgnum vöktu mikla athygli er hann sveif yfir Bandaríkjunum í mikilli hæð. Loftbelgurinn var að lokum skotinn niður í Atlantshafið fyrir tíu dögum síðan. Atvikið hefur skapað nokkurra spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Kína. Ekkert nýtt að stórþjóðir njósni um hvora aðra Fulltrúar bandarískra yfirvalda segja að belgurinn, sem gefur svifið um í mjög hárri hæð, hafi átt upptök sín í Kína og hafi verið notað til njósna, en kínversk stjórnvöld segja að um hafi verið að ræða belg til veðurathugana sem hafi svifið af leið. „Þetta er allt saman mjög dramatískt en þetta er í sjálfu sér ekkert nýtt að þessar þjóðir, stórþjóðir, séu að njósna um hvora aðra með ýmsum hætti, er bara búið að vera partur af prógramminnu í nokkur þúsund ár,“ sagði Friðrik. Tilkynnt var í gær að búið væri að hafa upp á skynjurum loftbelgsins umdeilda, sem gæti gefið nánari skýringar á tilgangi hans. Frá því að belgurinn var skotinn niður þann fjórða þessa mánaðar hafa bandarískar herþotur skotið niður þrjá grunsamlega „hluti“ til viðbótar á jafnmörgum dögum. Einn var skotinn niður yfir Alaska, einn yfir Yukon í norðurhluta Kanada og einn yfir Huron-vatn á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. „Það eru svona skrýtnari lýsingar. En þegar verður búið að finna leifarnar af því líka þá vonandi skýrist eitthvað. Eða ekki vegna þess að það eru náttúrulega ekkert ólíklegt að menn vilji halda einhverri leynd yfir því sem verið er að finna.“ Vont að vera nappaður Greint hefur verið frá því að umræddir þrír hlutir hafi ekki verið að senda frá sér nein merki, hafi ekki haft neinar lífverur innanborðs og að þau hafi verið knúin áfram af vindafli. fremur en vélarafli. Voru þau á flugi í um tuttugu til fjörutíu þúsund feta hæð, og þar með talin ógna flugöryggi. Þriðji hluturinn hefur vakið hvað mesta athygli. Honum hefur verið lýst sem áttstrendingi með hangandi strengjum. Eru þetta allt loftbelgir? „Nú bara vitum við það ekki. Nú eru lýsingarnar á þessum seinni hlutum að menn hafi ekkert endilega verið að sjá belgi halda þeim á lofti þannig að þá velta menn því fyrir sér hvort þetta sé einhvers konar helíum-loftför eða hvað þetta er. Þannig að þetta er mjög dularfullt og mjög spennandi,“ sagði Friðrik en bætti þó við að langlíklegasta skýringin væru nokkuð einföld. Fyrsti loftbelgurinn sem var skotinn niðurAnna Griffin/Missourian via AP „En grunnurinn í þessu er náttúrulega það að hérna eru bara þessar stórþjóðir að njósna um hvora aðra. Beita til þess breiðri tækni. Sum part sem að þætti gamaldags. Að nota belgi, er það ekki svolítið gamaldags? En þá kemur í ljós að þetta er eitthvað sem flýtur hægt og rólega. Þú ert með nema sem taka upp alls konar og einmitt hefur verið erfitt að finna eða sjá þannig að þeir komast lengra eða víðar,“ sagði Friðrik. Þó væri sá galli á þessari aðferðarfræði ef að kæmist upp um þessar njósnatilraunir með loftbelgjum, gæti það verið mjög sýnilegt almenningi, ólíkt öðrum leynilegri njósnaaðferðum. „Ef að þú ert nappaður þá er það eins og við erum að sjá núna yfirleitt í almannasýn. Þá neyðistu til að bregðast við. Það er ókostur við að það getur farið úr böndunum. Að það skapist ákveðið uppnám sem er kannski ekki alveg í samræmi við tilefnið. Það geti farið úr böndunum. Það verði svona bringubarningur sem leiðir til þess að það verður brugðist allt of hart við,“ sagði Friðrik. Búið að gera ratsjárkerfið næmara Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa einnig greint frá því að eftir atvikið með fyrsta loftbelginn sé búið að endurstilla ratsjárkerfi ríkisins þannig að þau sé næmari. Þannig nemi ratsjárnar nú fjölda merkja sem áður hafi einfaldlega verið síuð út og enginn gaumur gefinn. Ekki er ólíklegt að þetta skýri af hverju hlutirnir þrír, sem skotnir voru niður, á eftir loftbelgnum hafi fundist. „Það sem virðist vera er að stilling eða kalibíring á ratsjám eða annað, til þess að nema þessa belgi, hefur bara ekki verið þess eðlis að þeir væru að pikka þetta upp,“ sagði Frirðik.
Bítið Kína Bandaríkin Fréttir af flugi Hernaður Utanríkismál Kanada Tengdar fréttir Skutu niður óþekktan hlut í fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska Bandarísk yfirvöld skutu niður óþekktan hlut í um fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska. Hluturinn er sagður hafa verið á stærð við lítinn bíl. 10. febrúar 2023 20:18 Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum. 14. febrúar 2023 08:01 Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Innlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Sex taldir af eftir kafbátaslys Biður til Guðs að Bandaríkin gefi ekki eftir Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Hundruð tapa milljónum í viskísvikamyllu Samþykkti umdeilt bann við hælisumsóknum Suðurkóresk börn send úr landi eins og „farangur“ Hyggst leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Mesta endurnýjun vopnabúrs Svíþjóðar frá kalda stríðinu Sjá meira
Skutu niður óþekktan hlut í fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska Bandarísk yfirvöld skutu niður óþekktan hlut í um fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska. Hluturinn er sagður hafa verið á stærð við lítinn bíl. 10. febrúar 2023 20:18
Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum. 14. febrúar 2023 08:01