Sex keppendur í leit að sannri ást eru paraðir við tvo aðra einstaklinga. Þau byrja á því að vera í sambandi við báða aðilana í gegnum smáskilaboð og símtöl, en mega ekki senda hvort öðru myndir eða lýsa útliti sínu. Eftir þriggja daga spjall þarf keppandinn að velja á milli þeirra tveggja sem hann hefur verið í samskipum við. Keppandinn hefur ekki hugmynd um hvernig viðkomandi lítur út, fyrr en þau fara á fyrsta blinda stefnumótið.
Í kjölfarið flytja þau inn saman til að þróa sambandið en þá byrjar dramatíkin fyrir alvöru því eins og nafnið gefur til kynna snúast þættirnir ekki um ástir tveggja einstaklinga. Skyndilega birtist hinn aðilinn sem keppandinn var í samskiptum við og flytur inn! Tengja þau betur saman? Kviknar eitthvað á milli þeirra? Í þáttunum sjáum við ástir, drama og svik og getum ekki hætt að horfa.
Þáttaröðin er komin í heild sinni inn á Stöð 2+.
