Fyrir rekur N1 hraðhleðslustöðvar með ýmist 50 kW eða 150 kW hleðslugetu á Blönduósi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Háholti, Hvolsvelli, Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri, Sauðárkróki, Skógarlind, Staðarskála og Vík. Auk þess má finna Tesla-hleðslustöðvar á N1 Fossvogi og Staðarskála. Eftir uppfærsluna verða allar hraðhleðslustöðvar við þjónustustöðvar N1 með 150 kW hleðslugetu. Slíkar hleðslustöðvar henta vel til hleðslu á stærri ökutækjum eins og þeirra sem notaðar eru til vöruflutninga.
Aukin áhersla N1 á rafhleðslur við þjónustustöðvar er liður í því að auka framboð á endurnýjanlegum og grænum orkugjöfum og er í takt við orkustefnu félagsins til framtíðar. Félagið hefur ráðist í mikla uppbyggingu á þessu sviði á undanförnum árum og rekur meðal annars stærsta hleðslugarð landsins við Staðarskála. Á svæðinu er aðstaða til hleðslu alls 17 ökutækja í senn, níu í hleðslustöðvum N1 og átta í stöðvum Tesla.

Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, segir fjölgun stöðvanna til marks um sýn N1 að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi. „Með þessari uppbyggingu viljum við auðvelda fólki að ferðast umhverfisvænt um landið á eins skjótan og hagkvæman hátt og mögulegt er. Nýjar öflugar hraðhleðslustöðvar, víðsvegar um landið, munu gera lengri ferðalög á rafbílum að enn ákjósanlegri valkosti og spara vegfarendum bæði tíma við hleðsluna og áhyggjur.“
Sem fyrr segir hyggst hefja rekstur á 30 nýjum 150 kW hraðhleðslustöðvum á komandi mánuðum, en þær verða við eftirfarandi þjónustustöðvar N1.
- Borgarnes
- Hvolsvöllur
- Akureyri
- Vík
- Blönduós
- Egilsstaðir
- Ártúnshöfði, Reykjavík
- Flugvellir, Reykjanesbær
- Háholt, Mosfellsbær
Nánari upplýsingar veitir Einar Sigursteinn Bergþórsson, forstöðumaður orkusviðs N1, í síma 440 1249 / einarsig@n1.is.