Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu á forsýningu AIR myndarinnar Icepharma 12. apríl 2023 09:18 Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu við upphaf sýningarinnar en um var að ræða fyrstu leiknu sjónvarpsauglýsingu sem Nike á Íslandi hefur framleitt. Myndir/Mummi Lú. Icepharma, umboðsaðili Nike á Íslandi, og Samfilm héldu glæsilega forsýningu á AIR bíómyndinni í Ásbergssalnum í Kringlunni fyrir páska.
Myndin fjallar um skókaupmanninn Sonny Vaccaro, sem leikinn er af Matt Damon, og hvernig hann náði að tryggja íþróttavöruframleiðandanum Nike samning við einn frægasta körfuboltamann allra tíma, sjálfan Michael Jordan. Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu við upphaf sýningarinnar en um var að ræða fyrstu leiknu sjónvarpsauglýsingu sem Nike á Íslandi hefur framleitt. Klippa: Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu á forsýningu AIR myndarinnar Auglýsingastofan KIWI kom að framleiðslu auglýsingarinnar ásamt starfsfólki íþróttasviðs og hönnunardeildar Icepharma. Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, ljáði rödd sína við gerð auglýsingarinnar ásamt fríðu teymi íþróttafólks sem hefur komið að uppbyggingu vörumerkisins á Íslandi. Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta. Hann ljáði rödd sína við gerð auglýsingarinnar ásamt teymi íþróttafólks sem hefur komið að uppbyggingu vörumerkisins hér á landi. Meðal gesta voru Jón Arnór Stefánsson, Bjarni Guðjónsson framkvæmdarstjóri KR og eiginkona hans Anna María Gísladóttir, Karítas María Lárusdóttir þjálfari og Gylfi Einarsson, Kristján Jóhannsson einn af eigendum Icepharma, Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður og Steinar Aronsson annar stjórnenda hlaðvarpsins Boltinn lýgur ekki. Gestir klæddust margir hverjir Jordan skóm við tilefnið. Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.
Körfubolti Kvikmyndahús Mest lesið Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni Viðskipti erlent „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Viðskipti innlent AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Viðskipti innlent Ráðin hagfræðingur SVÞ Viðskipti innlent Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Viðskipti innlent Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ Atvinnulíf Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Viðskipti innlent Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Viðskipti innlent Þórdís til dómsmálaráðuneytisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Viðskipti innlent
Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Viðskipti innlent
AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Viðskipti innlent
Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Viðskipti innlent