Upp komst í byrjun árs 2019 að bílaleigan hefði átt við kílómetrastöðuna í bílum sem voru seldir og hóf lögregla í kjölfarið rannsókn.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en í frétt RÚV segir að Haraldur Sveinn hafi ekki mætt fyrir dóm. Verjandi hans hafi þó sagt að Haraldur hafi ekki átt heimangengt en að hann vilji koma sem fyrst fyrir dóm til að lýsa afstöðu sinni til ákæruefnisins. Fram kom að Haraldur hafi játað verknaðinn við rannsókn og sagðist verjandinn reikna með að afstaða fyrir dómi yrði sú sama.
Í ákæru, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir að Haraldur sé ákærður fyrir skjalafals, en fjársvik til vara. Er hann sagður hafa fengið annan mann til að falsa með rafrænum hætti kílómetramælana í aksturstölvum þannig að þeir sýndu færri ekna kílómetra. Þannig hafi hann ætlað að blekkja kaupendur bílanna, auðvelda endursöluna og fá hærra verð fyrir bílana.
Sömuleiðis hafi Haraldur látið breyta stöðu á kílómetramælum í Rentcentric-tölvukerfi bílaleigunnar til að samræma skráðar upplýsingar í kerfinu þannig að rangar upplýsingar myndu skila sér í gerða kaupsamninga, asöl og önnur heimildarskjöl við eigendaskipti.
Fram kemur að bílarnir hafi verið seldir á tímabilinu 2014 til 2018. Hafi komið fram að mælarnir hafi í mörgum tilvikum verið lækkaðir um tugi þúsunda, mest rúmlega 50 þúsund kólómetra.
Sex kaupendur bíla fara fram á skaðabætur í málinu, allt frá 310 þúsund krónum upp í rúmlega 1,1 milljón króna, auk dráttarvaxta.