McFadden er meðal hinna látnu, samkvæmt AP fréttaveitunni og stúlkurnar eru það einnig.
Fréttaveitan hefur eftir Janette Mayo, móður Holly Guess, eiginkonu McFadden, að hún sé einnig látin og barnabörn hennar, þau Rylee Elizabeth Allen (17), Michael James Mayo (15) og Tiffany Dore Guess (13). Mayo hefur eftir lögreglunni að þau hafi öll verið skotin til bana.
Hún sagði einnig að týndu táningarnir hefðu verið vinir Tiffany Dore Guess og hefðu ætlað að verja helginni með fjölskyldunni.

Átti að vera í dómsal
Mayo segir McFadden hafa svo gott sem haldið dóttur hennar og barnabörnum föngum á jarðareign þeirra nærri Henryetta.
„Hann laug að dóttur minni og sannfærði hana um að þetta væru bara mistök,“ sagði hún um það að fjölskyldan komst nýverið að því að McFadden væri dæmdur kynferðisbrotamaður. „Hann var hlédrægur. Hann var mjög kuldalegur, mjög þögull en hann hélt dóttur minni og börnunum svo gott sem læstum inni. Hann þurfti alltaf að vita hvar þau voru.“

McFadden var dæmdur fyrir nauðgun árið 2003 en var sleppt úr fangelsi í október 2020. Þá sýna dómsskjöl að hann átti að mæta í dómsal í gær þar sem réttarhöld gegn honum fyrir vörslu barnakláms og tilraun til að brjóta á barni átti að hefjast.
Alls hafa 97 verið myrtir í nítján fjöldamorðum í Bandaríkjunum á þessu ári. Samkvæmt AP hafa fjöldamorð þar sem minnst fjórir eru myrtir aldrei verið tíðari. Árið 2009 voru 93 myrtir í sautján fjöldamorðum á fyrstu fjórum mánuðum þess árs.