„Hún addaði mér bara á Facebook,“ segir Halli spurður hvernig kynni þeirra hafi komið til í viðtalsliðunum Ást er.
Vandræðalegi fyrsti kossinn virkaði
„Ég var ekkert að samþykkja hvern sem er á þessum tíma en kannaðist svo við hana að ég taldi mig þekkja hana en kom því alls ekki fyrir mig hvaðan. Það var svo ekki fyrr en einhverjum dögum síðar að ég skildi afhverju ég kannaðist svona við hana. Ég var þá að horfa á sjónvarpið og þar mætti mér andlitið á henni. Hún var sem sagt þula á Rúv.
Fyrsti kossinn: Vandræðalegur kveðjukoss eftir fyrsta stefnumót. Hann virkaði, held ég.
Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: Ég verð seint talinn rómantískur, en fyrsta myndin sem við Matthildur horfðum á saman var Benjamín dúfa. Hún telst nú varla rómantísk en augnablikið var það vissulega.

Mér finnst rómantískt stefnumót vera: Ég held að þú verðir að spyrja einhvern rómantískan að því.
Fyrsta gjöfin sem ég gaf konunni minni: Lopapeysa, mjög flott frá Farmers Market. Ég er nokkuð viss um að hún hafi verið ánægð með hana því hún skilaði henni að minnsta kosti ekki.

Fyrsta gjöfin sem konan mín gaf mér: Hún gaf mér líka lopapeysu, mjög rómantíska lopapeysu. Ég er mikill Farmers Market maður og var yfir mig ánægður með hana.
Konan mín er: Matthildur Magnúsdóttir.

Rómantískasti staður á landinu: Stofan í Staðarhvammi.
Ást er:
Að finna að maður skipti einhvern máli. Að finna að einhver sakni manns þegar maður er í burtu. Að finna að einhver gleðjist þegar maður er nálægur.