Embættin voru auglýst í Lögbirtingablaðinu þann 12. maí. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara sem mun hafa fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september næstkomandi. Hins vegar er um að ræða setningu í embætti dómara með fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs héraðsdómara stendur.
Sett verður í embættið frá og með 1. september 2023 og miðað er við að setningin vari til 28. febrúar 2029.
Meðal umsækjenda er Guðrún Sesselja Arnardóttir hæstaréttarlögmaður sem hefur gætt hagsmuna íslenska ríkisins í áberandi málum undanfarin ár auk þess að vera verjandi í áberandi sakamálum. Þá er Finnur Vilhjálmsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara og fyrrverandi sjónvarpsmaður, á meðal umsækjenda.

Umsækjendur um embættin eru eftirtaldir:
- Finnur Vilhjálmsson saksóknari,
- Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður,
- Hákon Þorsteinsson lögfræðingur,
- Logi Kjartansson lögfræðingur,
- Oddur Þorri Viðarsson lögfræðingur,
- Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara,
- Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari,
- Sigurður Jónsson lögmaður.
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar hið fyrsta.