Eftirfarandi myndir er frá svæðinu. Krossá rennur úr Mýrdalsjökli vestanverðum og milli Þórsmerkur og Goðalands. Rútan festist skammt frá Skagfjörðsskála í Langadal.


„Straumurinn lækkar í kvöld þannig við munum reyna aftur þá,“ segir Heiðrún Ólafsdóttir, skálavörður.
Rútan var án farþega en tveir bílstjórar voru í rútunni sem var bjargað af skálavörðum
„Það lítur út fyrir að hann fari á hliðina en vonandi hangir hann fram í kvöld,“ segir Heiðrún og bætir við að mikið sé í ánni núna vegna hlýinda.
Landsbjörg hefur ekki borist formleg beiðni um aðkomu björgunarsveita, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa.