Hugleikur Dagsson hefur tekið að sér að uppfæra lundann, lukkudýr RIFF í tilefni afmælis hátíðarinnar. Tónlistarmaðurinn Sveinbjörn Thorarensen, sem er betur þekktur sem Hermigervill, hefur samið stef hátíðarinnar.
„Eins mikið og ég elska RIFF, þá er aðal ástæðan að ég sagði já við þessu verkefni sú að mig langaði bara að teikna lundann,“ segir Hugleikur í tilkynningu frá RIFF. Lundinn hefur verið lukkudýr hátíðarinnar frá upphafi og ku vera honum mjög hugleikinn.
„Ég fíla hvernig þessi skepna hefur endurtekið stökkbreyst í gegnum árin í höndum mismunandi listafólks. Ég er montinn að fá að krukka í honum þetta árið.“

Í áðurnefndri tilkynningu segir að dagskrá RIFF verði „full af áhugaverðum og framsæknum kvikmyndum sem endurspegla það besta sem alþjóðleg kvikmyndagerð hefur upp á að bjóða en mikill fjöldi splunkunýrra, alþjóðlegra mynda verður sýndur á hátíðinni. Í mörgum tilfellum er um Evrópu- eða Norðurlandafrumsýningar að ræða“.
Dagskránni verður líkt og áður skipt upp í fjöldamarga flokka og sem dæmi má nefna Fyrir opnu hafi, Heimildarmyndir og Önnur framtíð ásamt flokknum Vitranir en í honum eru átta myndir sem koma til með að keppa um Gullna Lundann, aðalverðlaun hátíðarinnar sem veitt eru fyrir bestu myndina.
Hér að neðan má sjá stiklu fyrir hátíðina í ár. Frekari upplýsingar má finna á vef RIFF.