Lögreglustöðin í borginni Sturgeon Bay birti upptöku úr búkmyndavél Andrew Crabb, lögreglumannsins sem um ræðir, sem sýnir hvernig hann hjálpaði kúnum.
Þar má sjá hvernig hann fer inn í hlöðuna og opnar hlið svo kýrnar komist út. Crabb þurfti ekki að eyða miklum tíma í að koma kúnum út því þær hlupu úr hlöðunni um leið og hliðið opnaðist.
„Þegar ég gerði mér grein fyrir því sem var að gerast inni í þessari hlöðu, þá sá ég að hliðið var ekki að fara að opnast og þessar kýr myndu ekki lifa þetta af,“ er haft eftir Crabb í umfjöllun Fox News um málið.
Þá sagði Crabb að kýrnar væru vanalega geymdar í hlöðunni sem um ræðir yfir nóttina þar sem þær væru „gjarnar á að flýja.“