Alls fjórir Íslendingar hófu leik þar sem Sverrir Ingi Ingason var í hjarta varnarinnar hjá Midtjylland á meðan Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon voru allir í byrjunarliði Freys Alexanderssonar hjá Lyngby.
Midtjylland hafði byrjað leiktíðina vel og unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni á meðan Lyngby hafði náð í eitt stig úr fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.
Stefan Gartenmann, sem hóf leik við hlið Sverris í vörn Midtjylland fékk að líta rauða spjaldið strax á 6.mínútu og það færðu heimamenn sér í nyt.
Frederik Gytkjær kom Lyngby yfir með marki úr vítaspyrnu á 17.mínútu og eftir tæplega hálftíma leik var komið að alíslensku marki þegar Kolbeinn skoraði eftir stoðsendingu frá Sævari Atla Magnússyni.
Kolbeinn Finnsson (f.1999)
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) August 6, 2023
Sævar Atli Magnússon (f.2000)
Lyngby
FC Midtjylland
#Íslendingavaktin https://t.co/RYrMQas6PK
Heimamenn í Lyngby bættu við tveimur mörkum í síðari hálfleik áður en Jo Gue-sung klóraði í bakkann fyrir gestina undir lok leiks og lokatölur því 4-1 fyrir Lyngby.
Á sama tíma í sömu deild lék Mikael Neville Anderson fyrsta klukkutímann í 0-2 sigri AGF á Hvidovre.