Iðnaðarmenn sem unnu við framkvæmdir í risi ráðherrabústaðarins fundu höfuðkúpuna undir gólffjölum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í samtali við Mbl fyrr í vikunni að mönnunum hefði óneitanlega brugðið nokkuð við.
Í fréttinni hér fyrir ofan sjáum við svo sjálfan vettvang beinafundarins; umrætt háaloft í Ráðherrabústaðnum þar sem alla jafna er lítill umgangur. Fjalirnar á gólfinu voru fjarlægðar í framkvæmdunum í sumar - og hauskúpubrotunum sem hvíldu undir þeim hefur verið fundið nýtt heimili í bili, á rannsóknarstofu Þjóðminjasafnsins í Hafnarfirði. Fréttamaður vitjar brotanna í innslaginu hér að ofan.
Ekki er vitað hvenær eigandi höfuðkúpunnar var uppi eða hvort viðkomandi var Íslendingur, unnið er að greiningu. En aðrir þættir liggja fyrir.
„Þetta er líklega kona hún hefur verið smávaxin, hann sér það á stærð höfuðkúpunnar,“ segir Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri safneignar Þjóðminjasafnsins.

Höfuðkúpur notaðar sem öskubakkar
Ekki eru vísbendingar um að konan hafi hlotið áverka í lifanda lífi. Margt bendir hins vegar til þess að ekki hafi alltaf verið farið vel með beinin eftir andlát hennar, hvenær sem það var.
„Við vitum að höfuðkúpur voru notaðar sem öskubakkar og við erum með hér í okkar safnkosti höfuðkúpur sem voru notaðar sem öskubakkar,“ segir Ágústa.
Þannig að það er allavega ein kenning sem væri alveg raunhæfur möguleiki?
„Já, og það væri hægt í framhaldinu að skoða það.“
Þá eru sérfræðingar engu nær um hvernig beinin rötuðu í Ráðherrabústaðinn.
„Það er augljóst að einhver hefur sett þetta þarna, þetta er ekki eitthvað sem tapast milli gólffjala. Væntanlega hefur þetta verið sett þarna niður, lokað fyrir og ákveðið að þessi bein ættu að fá að hvíla þarna,“ segir Ágústa.
„Þetta er náttúrulega eins og upphafið að glæpasögu og það átta sig allir á því, jafnvel kaldrifjaðir vísindamenn.“