107 sm lax veiddist í Grímsá Karl Lúðvíksson skrifar 22. september 2023 12:32 Jón með 107 sm laxinn sem hann veiddi í Grímsá í morgun Grímsá er vel þekkt fyrir stóra hausthænga en Veiðivísir man ekki hvenær eða þá hvort það hafi veiðst 107 sm lax í henni áður.
Félagarnir í Haustmenn eru við veiðar í Grímsá og er þetta síðasta hollið þeirra af þremur hollum í haust en þeir voru í Norðurá síðustu dagana og veiddu vel. Hollið þeirra er við veiðar núna í Grímsá og eru komnir tuttugu laxar á land. Þessi 107 sm hængur sem Jón Jónsson landaði í morgun veiddist í Skarðshyl og er líklega um 25 pund. Jón missti annan fyrir tveimur dögum sem var talin af viðstöddum stærri en þessi en sá sleit 18 punda taum eftir tveggja tíma viðureign. Við óskum Jóni til hamingju með þennan lax sem að sjálfsögðu var sleppt eftir viðureignina.
Stangveiði Mest lesið Bleikjan orðin fáliðuð í Elliðavatni Veiði Haustveiðin með ágætum í Eystri Rangá Veiði 1.004 fiska vika í Veiðivötnum Veiði Örfáar stangir lausar í Elliðaánum Veiði Laxarnir streyma upp á stöng úr Urriðafossi Veiði Ytri Rangá komin yfir 3.000 laxa Veiði Elliðaárnar opnuðu í gær Veiði Opið bréf til Þingvallanefndar frá Landssambandi Stangaveiðifélaga Veiði Mokveiða makríl við Keflavíkurhöfn Veiði Veiðivísir gefur Veiðikortið 2016 Veiði