Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið tilkynnti í morgun um að hafa samið við Rauða krossins um að útlendingar, sem hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt lengur á aðstoð, geti fengið gistingu og fæði.
„Þetta er með sama fyrirkomulagi og neyðarskýlin eru fyrir aðra heimilislausa. Þessi hópur sem er, að mati ríkisins, réttindalaus hér á landi er kennitölulaus og fær þar af leiðandi ekki gistingu í neyðarskýlunum. Þetta er þar af leiðandi neyðarskýli ætlað þeim hópi,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson teymisstjóri hjá Rauða krossinum.
„Fólk getur komið þarna inn klukkan fimm á daginn og þarf að vera farið út klukkan tíu á morgnana.“
Leitað til margra félagasamtaka undanfarna mánuði
Úrræðið verður staðsett í Borgartúni en verið er að ganga frá samningum um það. Gylfi segir að Rauði krossinn viti af reynslunni að svona úrræði geti þurft að stækka mjög hratt og það hafi verið til hliðsjónar við val á húsnæði.
Staða þessa hóps hefur verið mjög óviss hingað til frá því að ný útlendingalög voru samþykkt á alþingi síðasta vetur. Fjöldi hjálparsamtaka hefur undanfarnar vikur varað við því að mannúðarkrísa sé í uppsiglingu í landinu vegna heimilislauss flóttafólks.
„Fólk í þessari stöðu hefur verið að leita til margra félagasamtaka að undanförnum vikum og mánuðum. Þörfin er til staðar, einhverjir hafa verið að koma til okkar og við höfum fylgst með. Öll þessi félagasamtök hafa verið í góðu samtali frá því að þessi lög tóku gildi og við verðum það áfram,“ segir Gylfi.
Vetur framundan og viðbrögð í samræmi
Nú er komin lausn á málinu, allavega tímabundin, en samið var við Rauða krossinn um að annast verkefnið fram í maí.
„Ef framkvæmd laganna verður áfram eins og hún er í dag þá verður einhvers konar þörf áfram. En það er ómögulegt að segja, það er undir stjórnvöldum komið,“ segir Gylfi.
„Við erum allavega að bregðast við þeirri stöðu sem er uppi. Það er að koma vetur, það er að kólna. Fólk er á götunni. Við því verður að bregðast og við erum að því.“
Samband íslenskra sveitarfélaga mjög ósátt
Samband íslenskra sveitarfélaga lýsti síðdegis yfir miklum vonbrigðum og algerri andstöðu við „einhliða“ aðgerðum ráðherrans. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að ráðherra hafi boðað fulltrúa sambandsins á fund í morgun og hann tilkynnt að hann hefði sent sveitarfélögum tilmæli vegna aðstoðar til þessa hóps. Jafnframt hefði hann gert breytingar á reglugerð um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
Reglurnar sem ráðuneytið hefur breytt eru nr. 520/2021 og settar á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í þeim er kveðið á um aðstoð sveitarfélaga, í sérstökum tilvikum, við erlenda ríkisborgara og endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna þeirrar aðstoðar.
„Stjórn sambandsins ítrekar þá afstöðu sem sambandið hefur talað fyrir undanfarnar vikur um að sveitarfélögum sé hvorki heimilt né skylt að veita þeim erlendu ríkisborgurum fjárhagsaðstoð, sem vísað hefur verið úr þjónustu ríkisins í kjölfar synjunar á umsókn viðkomandi um alþjóðlega vernd, skv. útlendingalögum,“ segir í yfirlýsingunni.