Sænska akademían greindi frá þessu á fréttamannafundi sem hófst klukkan 11, en Nóbelsverðlaunin verða formlega afhent í Stokkhólmi þann 10. desember.
Í rökstuðningi akademíunnar segir að Fosse hljóti verðlaunin fyrir „frumleg leikrit sín og prósum sem veita hinu ósegjanlegu rödd.“
Jon Fosse hefur verið eitt vinsælasta leikskáld í Evrópu um árabil og hafa nokkur verk eftir hann verið sett upp hér á landi, meðal annars verið Sumardagur sem var sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 2006. Árið 2015 hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þríleikinn Andvaka, Drauma Ólafs og Kvöldsyfju.
BREAKING NEWS
— The Nobel Prize (@NobelPrize) October 5, 2023
The 2023 #NobelPrize in Literature is awarded to the Norwegian author Jon Fosse for his innovative plays and prose which give voice to the unsayable. pic.twitter.com/dhJgGUawMl
Franski rithöfundurinn Annie Ernaux hlaut verðlaunin á síðasta ári.
Hægt er að fylgjast með blaðamannafundi sænsku akademíunnar í spilaranum að neðan.
Tilkynnt um handhafa Nóbelsverðlauna 2023
- Mánudagur 2. október: Lífefna- og læknisfræði
- Þriðjudagur 3. október: Eðlisfræði
- Miðvikudagur 4. október: Efnafræði
- Fimmtudagur 5. október: Bókmenntir
- Föstudagur 6. október: Friðarverðlaun Nóbels
- Mánudagur 9. október: Hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar