Rafíþróttir

Blikar höfðu betur í botnbaráttunni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Eyjamenn eru enn í leit að sínum fyrsta sigri.
Eyjamenn eru enn í leit að sínum fyrsta sigri.

Breiðablik vann mikilvægan sigur er liðið mætti ÍBV í botnbaráttu Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Leikurinn fór fram á Anubis og hóf ÍBV leikinn í vörn. Blikar tóku fyrstu lotu leiksins en Eyjamenn jöfnuðu strax í 1-1. Blikar höfðu leikinn að mestu í föstum tökum en ÍBV náðu þó að sigra nokkrar lotur. Varuchi og Wnkr voru efstir á fellutöflunni hjá Blikum í einsleitum fyrri hálfleik þar sem Breiðablik réð öllum ráðum.

Staðan í hálfleik: 4-11

Blikar virtust ætla hlaupa burt með sigurinn en ÍBV náðu þó að snúa nokkrum lotum til sín, og staðan var 8-14 eftir 22 lotur. Blikar komust þó á úrslitalotu fljótt og ÍBV sigruðu sína níundu lotu eftir að keyra vel inn á A-svæði Anubis og verja sprengjuna. ÍBV komust í stöðuna 10-15 en Blikar fundu þó sigurlotuna sína með frábæru spili Viruz á Vappanum og tóku Blikar því sigurinn.

Lokatölur: 10-16

ÍBV er enn á botni deildarinnar með 0 stig en Breiðablik heldur sér við í botnbaráttunni og jafna Sögu og ÍA á stigum með 4 stig.






×