Þetta segir í frétt Heimildarinnar. Þar er haft eftir Karli Steinari Óskarssyni, sviðsstjóra fiskeldis hjá Matvælastofnun, að enginn hafi séð álíka útbreiðslu laxalúsar og er nú í kvíum Arctic fish og Arnarlax í Tálknafirði.
Illa gengið að hafa stjórn á fjölgun lúsarinnar
Í tilkynningu sem birt var á vef MAST í dag segir að laxeldisfyrirtækjum á sunnanverðum Vestfjörðum hafi gengið erfiðlega að hafa stjórn á fjölgun laxalúsar í sjóeldiskvíum í Patreksfjarðarflóa síðan í vor.
Síðan þá hafi Matvælastofnun beint þeim tilmælum til viðkomandi fyrirtækja að útvega sem fyrst erlendis frá svonefnt meðhöndlunarskip, sem gerir það kleift að meðhöndla lax gegn lús án lyfja. Um sé að ræða meðhöndlanir eins og ferskvatnsmeðhöndlun, hitameðhöndlun og burstun. Slík meðhöndlun drepi lúsina á öllum stigum og hafi nær engin umhverfisáhrif.
Tilraunir hafi verið gerðar í haust af fyrirtækjunum til að fá til landsins meðhöndlunarskip en svo virðist sem fyrirvarinn hafi þurft að vera meiri, eftirspurn sé mikil eftir umræddum skipum.
Ekki hafi náðst að fá skip til landsins fyrr en um miðjan október. Að mati Matvælastofnunar sé nauðsynlegt að slíkt skip sé staðsett á Vestfjörðum frá maí og fram í október ár hvert og fyrirtækin stefni á að svo verði frá og með vorinu 2024.
Fiskarnir veiklist og drepist á skömmum tíma
Rannsóknir á fiskum úr Táknafirði hafi leitt í ljós að umhverfisbakteríur hafi sýkt sárin sem mynduðust vegna lúsa og gert þau mun umfangsmeiri. Þessi sár geri það að verkum að fiskurinn missir getuna til að halda lífsnauðsynlegu jónajafnvægi í líkamanum. Í Tálknafirði hafi þetta gert það að verkum að hluti fisksins hefur veiklast á skömmum tíma. Sá fiskur sem nú er verið að farga fari í meltugerð sem notuð sé meðal annars í loðdýrafóður. Fiskurinn fari ekki til manneldis.
Matvælastofnun muni fara yfir atburðarásina með fyrirtækjunum þegar aðgerðum er lokið og leggja til leiðir sem ættu að takmarka slíka atburði í framtíðinni.