Aðrir dómstólar landsins hafa sætt siðareglum frá 1973 en í greinargerð með nýjum siðarlegum Hæstaréttar segir að þrátt fyrir að engar skriflegar siðareglur hafi gilt fyrir dómstólinn hafi dómarar við hann sætt „óskráðum siðareglum“, sem hafi verið sóttar hingað og þangað.
Í greinargerðinni segir hins vegar einnig að vegna þess að engar skriflegar reglur hafi verið í gildi fyrir dómstólinn hafi sá „misskilningur“ orðið að dómararnir sættu alls engum reglum.
Steve Vladeck, prófessor við University of Texas School of Law, sem hefur skrifað mikið um Hæstarétt Bandaríkjanna, segir reglurnar hálfkák, þar sem ekkert eftirlit verði haft með framfylgni þeirra.
Siðareglurnar séu hins vegar til marks um að dómararnir séu meðvitaðir um að siðferði sé eitthvað sem skipti almenning máli og að þeir hafi séð sig tilneydda til að bregðast við gagnrýninni sem fram hefur komið.
Dómararnir sakaðir um að þiggja gjafir og misnota aðstöðu sína
Í reglunum er meðal annars fjallað um það hvernig dómurunum ber að hegða sér og framfylgja skyldum sínum. Þeim beri til að mynda að íhuga vel hvort það sé við hæfi að þeir komi fram á ákveðnum viðburðum.
Þá fjalla reglurnar einnig um það hvenær þeim beri að segja sig frá máli, til að mynda ef þeir eru hlutdrægir gagnvart málsaðila eða ef niðurstaðan gæti haft veruleg áhrif á hagsmuni þeirra.
Greint hefur verið frá því að Hæstaréttardómarinn Clarence Thomas hafi þegið árleg ferðalög frá efnuðum og áhrifamiklum Repúblikana en auðjöfurinn, Harlan Crow, greiddi einnig skólagjöld ættingja Thomas sem bjó hjá dómaranum og greiddi fyrir hús þar sem móðir Thomas bjó.
Annar dómari, Sonia Sotomayor, hefur verið sökuð um að nota starfsfólk dómstólsins til að selja bækur sínar á opinberum viðburðum.