Meginvextir Seðlabankans verða áfram 9,25 prósent samkvæmt þessari ákvörðun. Segir peningastefnunefnd meginvexti verða þannig væntanlega fram til 7. febrúar, á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans. Þá verður búið að leggja fram fjárlög næsta árs og að öllum líkindum búið að gera nýja kjarasamninga. Auk þess ætti óvissan varðandi jarðhræringar á Reykjanesi að vera minni.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir enn ríkja mikla spennu í þjóðarbúinu og hún sé meiri en áður hafi verið talið. Enn sé mikil eftirspurn eftir vinnuafli og mikill krafur í hagkerfinu. Hins vegar hafi dregið úr neyslu almennings og hægt á verðhækkunum á húsnæðismarkaði.
„Það er bara töluvert verkefni fyrir Seðlabankann í rauninni að hemja þetta. Af því að okkur hættir dálítið til að ætla að gera allt of mikið í einu. Sem leiðir til þess að kerfið þenst út og það myndast spenna,“ segir Ásgeir.

Peningastefnan væri að virka en hægar en spáð hefði verið og útlit fyrir að verðbólga verði í kringum fimm prósent á næsta ári. Í yfirstandandi kjaraviðræðum væri mikilvægt að tryggja áframhaldandi kaupmátt.
„Nafnlaunahækkanir eru ekki það sama og kaupmáttur. Of miklar nafnlaunahækkanir skila ekki kaupmætti. Eina leiðin til að fá kaupmátt er í rauninni að gera kjarasamninga sem tryggja verðstöðugleika,” segir seðlabankastjóri.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR kröfuðst þess nýverið að seðlabankastjóri yrði leystur frá embætti. Alla vega ekki endurskipaður þegar skipun hans rennur út á næsta ári vegna mistaka í vaxtamálum. Bæði þegar vextir voru lækkaðir í tímum faraldursins og hækkaðir undanfarin missseri. Þetta hafi kollvarpað húsnæðismarkaðnum.
„Ég held að þetta sé fjarri sanni. Það sem við horfðum fram á í covid-faraldrinum var mesti samdráttur frá stríðslokum. Þannig að við brugðumst við til að halda uppi atvinnu og framleiðslukerfinu sem heppnaðist mjög vel,“ segir Ásgeir.
Ef keyra ætti vextina niður í fjögur prósent eins og Ásthildur Lóa og Ragnar Þór krefðust yrði verðbólgan enn meiri en hún væri nú. Þá væri einkennilegt að sjá gagnrýni á vaxtalækkanirnar í faraldrinum frá verkalýðshreyfingunni því sú aðgerð hefði verndað fjölda starfa. Undanfarið hafi síðan fasteignaverð haldið áfram að hækka þrátt fyrir háa vexti.
„Þannig að ég vísa þessu til föðurhúsanna.“
En skipunartími þinn rennur út á næsta ári. Ætlar þú að sækjast eftir því að gegna embættinu áfram?
„Já, ég geri ráð fyrir því,“ segir Ásgeir Jónsson.