Þetta segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda en Vísir birtir nú fjórða metsölulista ársins og kannski þann sem mestu máli skiptir.
Vandið valið
Nú er baráttan um athygli bókakaupenda að harðna og taugar höfunda og útgefenda þandar. En Bryndís setur sig í heimspekilegar stellingar þegar hún rýnir í listann eins og hann liggur fyrir.
„Ég veit ekki til þess að gerðar hafi verið rannsóknir á vægi metsölulista á kauphegðun. Við lifum auðvitað á algóritmiskum tímum þar sem þjónusta gengur út á að koma söluvöru með sem allra fljótlegasta hætti í hendur viðskiptavina svo það eina sem þeir þurfi að hugsa út í sé að ganga frá greiðslu,“ segir Bryndís.
Hún er reyndar óstöðvandi og það er erfitt að skauta hjá því að í orðum hennar gæti örlítillar bölsýni:
„Mannleg samskipti eru hverfandi og vöruuppstillingar, hvort sem er í verslunum eða á vefsíðum miða allar í þessa átt. En þeir eru sem betur fer enn til, þessir eftirsóttu ástvinir sem snúa á kerfið, dvelja drjúga stund við bókaborðin, laumast til að lesa svolítið í stökum bókum, jafnvel heilu kaflana og leggja sig verulega fram við að velja bók sem telja megi að muni geðjast hinum heppna lesanda en koma honum þó jafnframt á óvart og víkka þannig sjóndeildahring viðkomandi.“
Aldrei meira gefið út
En hvað er svo títt? Frasabókin og Bílar í lífi þjóðar teljast til hinna svörtu fola í ár, að sögn Bryndísar; það eru þær bækur sem helst koma á óvart á bóksölulistanum. En þær ná þó ekki að ógna þrítugustu Útkallsbók Óttars Sveinssonar, sem líkt og svo ótal oft áður er mest selda bókin í flokki fræðirita og frásagna.

„Stefán Máni, Eva Björg, Vilborg Davíðsdóttir og Eiríkur Örn eru öll að stækka lesendahóp sinn umtalsvert þetta árið en hafa ber í huga að útgáfa íslenskra skáldverka var með fjörugasta móti, líklega milli 80 og 90 verk þegar allt er talið, svo samkeppnin hefur verið hörð. Að auki eru svo að koma út margar skotheldar þýðingar sem enginn alvöru bókaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.“
Skorar á fyrirtæki og jólasveina
Bryndís lýkur orðum sínum á því að skora á íslensk fyrirtæki, að bæta nú bókum við jólapakka starfsfólks.
„Það er góð þyngd í þeim, þær pakkast vel og svo styður lesturinn auðvitað við framgang og þróun íslenskrar tungu. Þá er mjög mikilvægt að hafa í huga að gefa ekki öllum sömu bókina, gera frekar svolítið lottó úr þessu þannig að einhver spenna verði við tréið á sunnudaginn. Skáldverk, þýðingar, fræðibækur, ljóð, matreiðslubækur, fjölskyldubækur, tarot lestur og ævisögur.“
Bryndís vill bæta við þessa áskorun sína jólasveinum, að þeir verði djarfhuga í vali sínu. „Starfsfólk getur svo skipst á bókunum og rætt í kaffitímum langt fram á næsta ár. Já og svo það sé sagt, það er ekkert að því að gefa körlum bækur eftir konur.“
20 mest seldu bækurnar 11.-17. desember
- Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
- Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
- Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
- Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
- Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Hvítalogn - Ragnar Jónasson
- Borg hinna dauðu - Stefán Máni
- Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
- Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
- Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
- Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
- Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
- Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
- Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
- Gleðilega jólahátið, þrautabók – Unga ástin mín
- Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
- Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
Skáldverk
- Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
- Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
- Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Hvítalogn - Ragnar Jónasson
- Borg hinna dauðu - Stefán Máni
- Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
- Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir
- Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl
- DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir
- Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir
- Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Ból - Steinunn Sigurðardóttir
- -15. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir
- -15. Maðurinn frá São Paulo - Skúli Sigurðsson
- Jólabókaklúbburinn - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
- Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
- Til hamingju með að vera mannleg - Sigríður Soffía Níelsdóttir
- Heimsmeistari - Einar Kárason
- Kjöt - Bragi Páll Sigurðarson
Fræðirit, handbækur og ævisögur
- Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
- Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
- Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
- Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
- Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst
- Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen
- Í eldhúsinu með Hrefnu Sætran - Hrefna Sætran
- Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
- Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir
- Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy
- Björn Pálsson: Flugmaður og þjóðsagnapersóna - Jóhannes Tómasson
- Hekla - Elsa Harðardóttir
- Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
- Hetjudáðir á hafi úti - Steinar J. Lúðvíksson
- Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
- Jökulsævintýrið - Jakob F. Ásgeirsson
- Gangandi bassi Endurminningar djassmanns - Tómas R. Einarsson
- Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
- Helvítis matreiðslubókin - Ívar Örn Hansen og Þórey Hafliðadóttir
- Krossgátur Morgunblaðið bók 14 - Edda útgáfa
Barna- og ungmennabækur
- Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
- Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
- Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
- Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
- Gleðilega jólahátið, þrautabók - Unga ástin mín
- Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
- Jólasyrpa 2023 - Walt Disney
- Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
- Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
- Blæja (Bluey) -Límum þetta! - Límmiðabók
- Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
- Fótboltaspurningar 2023 - Guðjón Ingi Eiríksson
- Eldur - Björk Jakobsdóttir, myndh. Freydís Kristjánsdóttir
- Verstu gæludýr í heimi - David Walliams
- Skólaslit 2 - Dauð viðvörun - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
- Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Fótboltastjörnur - Mbappé er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson
Uppsafnaður listi frá áramótum
- Sæluríkið - Arnaldur Indriðason
- Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir
- Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson
- Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
- Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson
- Hvítalogn - Ragnar Jónasson
- Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
- Borg hinna dauðu - Stefán Máni
- Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan
- Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson
- Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson
- Bannað að drepa - Gunnar Helgason
- Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir
- Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir
- Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir
- Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson
- Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
- Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson