Í myndbandinu þar sem farið er yfir þróun helstu hagtalna á árinu kemur meðal annars fram að Anna sé vinsælasta kvenmannsnafn landsins. Líkt og greint var frá í byrjun árs er þetta í fyrsta sinn sem Guðrúnu er steypt af stóli sem vinsælasta kvenmannsnafninu.
Þriðja vinsælasta kvenmannsnafnið er Kristín. Af karlmannsnöfnum er Jón vinsælasta karlmannsnafnið, Sigurður í öðru sæti og Guðmundur í því þriðja.
400 þúsunda múrinn nálgast óðfluga
Í byrjun árs voru landsmenn tæplega 388 þúsund, í september hafði þeim fjölgað um níu þúsund og voru þá tæplega 397 þúsund. Þar af bluggu 250 þúsund á höfuðborgarsvæðinu en 145 þúsund á landsbyggðinni.
Tæplega 73 þúsund erlendir ríkisborgarar bjuggu á Íslandi í lok september, 18% landsmanna.

Í myndbandinu er einnig vikið að ævilengd landsmanna, en þar kemur fram að íslenskar konur lifa að meðaltali í 84 ár en karlar í 81 ár. Þetta merkir að íslendingar eru einna langlífastir evrópuþjóða.

Dró úr atvinnuleysi annað árið í röð
Tekjur af erlendum ferðamönnum jukust mikið á árinu á sama tíma og það dró verulega úr tekjum á álútflugningi.

Verðbólgan hélst mikil en tók aðeins að hjaðna upp úr miðju ári. Á sama tíma hækkuðu helstu neysluvörur og vextir fóru hækkandi. Annað árið í röð dró úr atvinnuleysi á sama tíma og starfandi fólki fjölgaði.
Hagvöxtur hefur verið mikill undanfarið tvö ár og á fyrri hluta þessa árs. Á seinni hluta ársins hægðist hins vegar á miklum vexti efnahagslífsins, einkum innlendri neyslu.
Hér er hægt að sjá myndband Hagstofunnar í heild sinni: