„Þetta er svolítið skrítið að vakna við þessar fréttir í morgun að það væri komið gos svona nálægt húsinu. Ég er svo sem ekkert alveg steinhissa, það var vitað síðan í nóvember að húsið stendur ofan á sprungunni. Það er mikið skemmt, það skemmdist mjög mikið strax 10. nóvember og ef það er ekki alveg ónýtt er eitthvað mjög lítið í því sem er ekki ónýtt,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir, forstjóri ORF Líftækni.
Eldgos hófst við Sundhnúk norðan við Grindavík rétt fyrir klukkan átta í morgun. Grindavíkurbær var rýmdur í flýti á fimmta tímanum eftir röð jarðskjálfta og rennur hraunið nú í átt að bænum.
Berglind segir nú þegar verið að skoða aðra húsakosti fyrir starfsemi fyrirtækisins.
„Það er bara verið að meðhöndla okkar mál í kerfinu þannig að þetta væntanlega mun bara hraða því. Það er orðið alveg augljóst núna að það er ekki verið að byggja neitt þarna. Kannski af því að það er það mikið skemmt og á svo slæmum stað breytir það ekki endilega stöðunni fyrir okkur að þangað renni nú hraun,“ segir Berglind.
„En það er ótrúlega skrítið að sjá þetta gerast og ótrúlega skelfilegt hvað þetta er komið nálægt Grindavík. Það er miklu stærra mál. Við getum byggt nýtt gróðurhús. Það er miklu minna mál heldur en heilt bæjarfélag, allir þessir innviðir, öll þessi hús, allt þetta fólk sem á heima þarna. Það er stóra málið.“