Á vef Grindavíkurbæjar kemur fram að einstaklega mikilvægt sé að svör berist frá öllum heimilum í Grindavík, óháð því hversu góð eða slæm húsnæðisstaða fólks sé í dag.
Markmiðið sé að einn forsvarsaðili svari fyrir hvert heimili, en öllum Grindvíkingum, 18 ára og eldri, er velkomið að svara spurningalistanum.
„Til að hafa trygga yfirsýn með hvaða heimili hafa svarað og hver þörf þeirra er mun skráning í könnunina fara fram með rafrænum skilríkjum,“ segir á vef Grindavíkurbæjar.
„Í lok könnunarinnar verður þátttakendum boðið að velja um hvort svör þeirra verði vistuð með persónugreinanlegum upplýsingum. Niðurstöður könnunarinnar verða þó alltaf gerðar ópersónugreinanlegar fyrir birtingu.“

Aðgengi að gögnunum verður takmarkað við það starfsfólk stjórnarráðsins, Almannavarna, Rauða krossins og Grindavíkurbæjar sem hafa beina aðkomu að húsnæðismálum Grindvíkinga.
Hér er hægt að skrá sig inn í könnunina.