Brons til Suður-Afríku Smári Jökull Jónsson skrifar 10. febrúar 2024 22:16 Ronwen Williams var hetja Suður-Afríku en hann varði tvær vítaspyrnur í vítakeppninni. Vísir/Getty Suður-Afríka tryggði sér í kvöld bronsverðlaunin á Afríkumótinu í knattspyrnu eftir dramatískan sigur á Kongó.
Suður-Afríka tapaði gegn Nígeríu í undanúrslitum eftir vítakeppni á meðan Kongó féll úr leik eftir tap gegn heimamönnum frá Fílabeinsströndinni. Fyrri hálfleikurinn í dag var fremur tíðindalítill. Lið Kongó var líklegri aðilinn til að skora en fór illa með færi og þá sérstaklega í síðari hálfleiknum þegar liðið fékk ágætis færi til að setja sigurmarkið. Það tókst hins vegar ekki og staðan markalaus eftir venjulegan leiktíma. Ekki er gripið til framlengingar í leik um 3. sætið á Afríkumótinu heldur farið beint í vítaspyrnukeppni. Vítaspyrnukeppnin var heldur betur dramatísk. Suður-Afríka byrjaði á að misnota fyrstu spyrnu sína þegar Teboho Mokoena skaut í stöng. Liðin skoruðu síðan úr öllum spyrnum sínum þar til komið var að síðustu spyrnu Kongó. Han atók Chancel Mbemba en Ronwen Williams í marki Suður-Afríku varði. Því þurfti bráðabana til að skera úr um úrslitin. Bæði lið skoruðu í fyrstu umferðinni og Suður-Afríka komst í 6-5 með marki Siyanda Xulu í annari umferð bráðabanans. Þá var komið að Kongó en aftur varði Williams í marki Suður-Afríka sem þar með tryggði sér bronsverðlaunin. Þetta er í fjórða sinn sem Suður-Afríka vinnur til verðlauna á Afríkumótinu en liðið vann gull árið 1996, silfur árið 1998 og brons árið 2000.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Fótbolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Fótbolti „Vafasamir dómar sem féllu gegn okkur í þessu einvígi“ Fótbolti Bætti skólamet pabba síns Körfubolti Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Fótbolti Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Sport „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Fleiri fréttir Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Chelsea til Kaupmannahafnar og Víkingsbanar mæta Alberti Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Orri mætir Manchester United í Evrópudeildinni Nasistakveðjur, Ísrael og Palestína á Evrópukvöldi Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Dregið í Meistaradeildinni í dag: Gætum fengið svakalega nágrannaslagi Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Sjáðu grísku mörkin sem enduðu Evrópuævintýri Víkinga Dómarinn sagður hafa beðið um treyju Messi eftir leik „Vafasamir dómar sem féllu gegn okkur í þessu einvígi“ Orri Steinn skoraði þegar Sociedad sparkaði Midtjylland úr keppni Uppgjörið: Panathinaikos - Víkingur 2-0 | Grátlegt tap í Grikklandi Rómverjar og FCK sneru við dæminu Sama byrjunarlið og síðast hjá Víkingum Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Myndband: Fallegar kveðjur til Víkinga fyrir átök kvöldsins Sindri Kristinn á óskalista KA Fyrstur allra með þrennu á Nývangi og Santiago Bernabéu í Meistaradeild Býst við Grikkjunum betri í kvöld Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Meiðsli hjá Panathinaikos sem endurheimtir þó stjörnuna Dæmdur fyrir kossinn en fer ekki í fangelsi Víkingar kæmust í 960 milljónir „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? Sjáðu þrennu Mbappé, markaveislu PSG og dramatíkina hjá Juve og PSV Hafa verið þrettán ár af lygum Laus frá Man. United og vaknar brosandi á hverjum morgni Sjá meira