Krafan um aðgengi fyrirtækja og íbúa að Grindavík verður sífellt háværari. Í gær funduðu fyrirtækjaeigendur með almannavörnum og lögreglunni um málið. Á þeim fundi var tilkynnt að Bláa lónið fengi að taka á móti gestum á ný en á meðan eru enn eru strangar reglur um viðveru og starfsemi í Grindavík. Þetta hefur mælst misvel fyrir hjá Grindvíkingum.
„Hann hefur ekki stoppað hjá mér síminn núna. Því að fólk hélt að það væri að dreyma að það væri búið að opna í Bláa lónið en ég segi það að ég fagna því að það sé búið að opna í Bláa lónið en það þarf að hleypa okkur líka heim.“
Hjálmar segir íbúa og starfsfólk fyrirtækja hafa verulega takmarkað aðgengi að bænum og dæmi séu um að ekki hafi verið hægt að ráðast í verðmætabjörgun hjá fyrirtækjum út af skorti að aðgengi. Þessu þurfi að breyta strax og taka til að mynda upp það fyrirkomulag að þessi hópur hafi aðgang að bænum frá sjö á morgnana til sjö á kvöldin.
„Það er algjört skilyrði að Grindvíkingar fái að heim og að atvinnulífið fái að fara að stað þarna megin við Þorbjörn eins og hinu megin og gleymum því ekki að síðasti atburður hann er miklu nær lóninu heldur en nokkur tímann Grindavík.“
Sprungur sem hafi myndast í bænum séu ekki tilefni til að loka öllum bænum þar sem hægt sé að girða af ákveðin svæði.
„Það er alveg öruggt að fara inn á ákveðin svæði. Það eru búnir að keyra fjögurra hásinga vörubílar sem eru þrjátíu og tvö tonn. Þeir eru búnir að keyra allt þetta svæði fram og til baka. Síðan hafa farið fimmtíu tonna vörubílar út af svæðinu og það hlýtur að gefa okkur vísbendingu um að sennilega er jörðin í lagi þar. Ofan á þetta þá er búið að skoða hluta af vegunum og hluta af þessu en það á eftir að rýna í gögnin. Þetta tekur bara allt of langan tíma.“