Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun, en Matthías ritstýrði blaðinu í rúm fjörutíu ár, frá árinu 1959 til 2000.
Matthías fæddist 3. janúar 1930 og var sonur hjónanna Haraldar Johannessen, aðalféhirðis Landsbankans, og Önnu Jóhannesdóttur Johannessen húsmóður.
Hann lauk kandídatsprófi frá Háskóla Íslands í íslenskum fræðum og hóf fyrst störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu samhliða námi árið 1951 þegar hann var 21 árs að aldri. Hann var svo ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins við hlið Valtýs Stefánssonar, Bjarna Benediktssonar og Sigurðar Bjarnasonar árið 1959, þá einungis 29 ára að aldri. Hann gegndi á ritstjóraferli sínum einnig stöðu ritstjóra við hlið Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Styrmis Gunnarssonar.
Auk þess að starfa sem ritstjóri skrifaði Matthías einnig tugi bóka, ljóðabækur, leikrit og viðtalsbækur. Hann hlaut fjölda verðlauna á ferli sínum meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina Kjarval árið 2005.
Þá var Matthías einnig virkur í félagsmálum og sat meðal annars í stjórn Hins íslenska þjóðvinafélags, í menntamálaráði, í bókmenntaráði Almenna bókafélagsins, stjórn Krabbameinsfélagsins og Hjartaverndar, auk þess að gegna trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Matthías giftist Hönnu Ingólfsdóttur árið 1953 og eignuðust þau tvo syni, þá Harald, lögfræðing og fyrrverandi ríkislögreglustjóra, og Ingólf, lækni og lektor við Edinborgarháskóla. Hanna lést árið 2009.