„Þetta eru ofsafengin viðbrögð svo vægt sé til orða tekið miðað við þær hófstilltu kröfur sem við höfum sett fram gagnvart 150 manna hópi uppi á Keflavíkurflugvelli. Sem vinnur á lágmarks kjörum,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR skömmu eftir að hafa komist að því í fjölmiðlum að SA hygðist boða til verkbanns.

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir þetta eðlileg viðbrögð að hálfu samtakanna.

„Þetta eru auðvitað fyrst og fremst varnaraðgerð að okkar hálfu til að mæta þeim fyrirhuguðu verkföllum sem VR hefur boðað vegna þeirra kjaraviðræðna sem eru í gangi hérna. Við erum með þessu að setja þrýsting á forystu VR til að ljúka þessum kjaraviðræðum hratt og vel. Sem ég veit að við eigum að geta gert,“ sagði Sigríður Margrét um miðjan dag í dag.
„Það veltur auðvitað allt á því að við náum samningum. Við teljum okkur enn þá vera í samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Ég veit ekki til þess að þeirra viðhorf hafi breyst hvað það varðar,“ sagði Ragnar Þór.
Verkfallsaðgerðir VR sem eiga að hefjast helgina fyrir páska og halda svo áfram með hléum í páskavikunni og dagana þar á eftir, hefðu mikil áhrif á áætlanir Icelandair. Flug hjá þúsundum farþega flugfélagsins og annarra félaga sem Icelandair þjónustar, sem og útflutningur á fiski og öðrum vörum myndu raskast. Verkbann Samtaka atvinnulífsins myndi síðan senda þúsundir og jafnvel tugþúsundir skrifstofufólks heim án launa og án réttar til atvinnuleysisbóta.

„Við erum með mjög öfluga sjóði, mjög öfluga sjóði. Þannig að þeir eru vel í stakk búnir til að takast á við ýmislegt," segir formaður VR.
Verkbanni hafði nánast ekki verið beitt í áratugi þegar Samtök atvinnulífsins boðuðu verkbann í harðri deilu við Eflingu í byrjun síðasta árs. Það varð til þess að hnúturinn í þeirri deilu hertist enn frekar. Sigríður Margrét segir vinnulöggjöfina samhverfa varðandi vinnustöðvanir.
„Á nákvæmlega sama hátt og stéttarfélögin geta boðað til verkfalla til að þrýsta á um sínar kröfur, geta Samtök atvinnulífsins boðað til verkbanns til þess einmitt að þrýsta á um sínar kröfur,“ sagði Sigríður Margrét. Nú skipti máli að nýta einstakt tækifæri til að ná efnahagslegun stöðugleika.
Niðurstaða í atkvæðagreiðslu VR félaga um verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli liggur fyrir á hádegi á fimmtudag.
„Það er ljóst miðað við þátttökuna í atkvæðagreiðslunni hjá okkur að hún er gríðarlega góð. Það voru yfir 90 prósent búin að greiða atkvæði núna í morgun. Þá var atkvæðagreiðslan búin að standa í rúman sólarhring. Þannig að mér finnst það benda til að fólkið uppi á velli er tilbúið til að standa þétt á bakvið sínar kröfur og sínar aðgerðir,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.