Það voru allir í hátíðarskapi þegar fulltrúar Félags áhugafólks um Downs heilkennið tók hús á forseta Íslands í dag. Sameinuðu þjóðirnar helguðu þennan dag Downs heilkenninu árið 2011. Allt frá því Guðni Th. Jóhannesson tók við forsetaembættinu hefur félagið fært honum mislita sokka á þessum degi, enda hrifning forsetans á skrautlegum sokkum alþekkt.

Guðjón Gísli Kristinsson 35 ára myndlistarmaður kom að hönnun sokkanna að þessu sinni ásamt nafna sínum Tryggvasyni fatahönnuði.
Forsetinn er mjög ánægður að fá sokkana frá þér?
„Já, ég er svo ánægður með þetta. Ég elska að vera hér með öllum. Mamma og pabbi komust ekki. Allir voru í góðu skapi og í stuði,” sagði Guðjón Gísli eftir að hafa afhent forsetanum tvenn sokkapör, ein fyrir forsetann og hin fyrir Elízu forsetafrú.

Jón Árni Arnarson þriggja ára lék á alls oddi og lét eins og heima hjá sér enda nýbúinn að heimsækja Bessastaði af öðru tilefni. Forsetinn segir heimsóknir á Downs heilkennis deginum vera með skemmtilegri embættisverkum hans.
„Við fögnum hér fjölbreytni, víðsýni, umburðarlyndi. Gerum það í hópi frábærs fólks.“ Þessi dagur minnti líka á alvöru lífsins. Með aukinni tækni við fósturskimanir fækkaði fólki með Downs heilkenni í samfélaginu.

„Mæður, foreldrar eiga að taka sínar upplýstu ákvarðanir. Hluti af því á að snúast um það að fólk með Downs heilkenni getur átt öflugt, innihaldsríkt og hamingjusamt líf,” segir forsetinn.
Nói Sær Guðmundsson sem fermist í vor mætti að sjálfsögðu í mislitum sokkum í tilefni dagsinis. Hann var hæst ánægður með heimsóknina og forsetann.
„Bara gaman. Ég er sammála Guðna. Bara frábært,“ sagði Nói Snær. Guðmundur Ármann Pétursson faðir hans er formaður félagsins og sagði að á þessum degi væri lífinu fagnað.

„Guðni hefur auðvitað verið alveg einstakur vinur okkar, lagt okkur gott til og talað fallega til okkar. Sem hefur skipt okkur gríðarlega miklu máli. Alþjóðlega er þetta búið að eiga sér áratuga sögu,” sagði formaður Félags áhugafólks um Downs heilkennið.