Simpson var á árum áður frægur íþróttamaður og spilaði amerískan fótbolta í NFL-deild Bandaríkjanna. Hann lék einnig í Naked Gun kvikmyndunum frægu en er í dag þekktastur fyrir allt annað.
Í yfirlýsingu sem fjölskylda hans birti í gær biðja þau um næði.
On April 10th, our father, Orenthal James Simpson, succumbed to his battle with cancer.
— O.J. Simpson (@TheRealOJ32) April 11, 2024
He was surrounded by his children and grandchildren.
During this time of transition, his family asks that you please respect their wishes for privacy and grace.
-The Simpson Family
Árið 1994 var hann ákærður fyrir að stinga Nicole Brown Simpson, fyrrverandi eiginkonu sína og Ronald Goldman, vin hennar, til bana á heimili hennar í Los Angeles. Hann var þó sýknaður í dómsal ári síðar.
Lík Simpson og Goldman fundust fyrir utan heimili hennar þann 12. júní 1994 og lá Simpson strax undir grun. Fimm dögum síðar var gefin út handtökuskipun á hendur honum en í stað þess að gefa sig fram reyndi hann að flýja undan lögreglunni á hvítum Ford Bronco jeppa.
Árið 1997 höfðaði fjölskylda Goldman mál gegn Simpson þar sem hann var dæmdur til að greiða fjölskyldunni 33,5 milljónir dala í skaðabætur. Til að greiða þá upphæð neyddist Simpson til að selja verðlaunagripi sína og minjagripi.
Árið 2007 var hann svo dæmdur í 33 ára fangelsi fyrir rán. Þá notaði Simpson skotvopn til að ræna tvo minjagripasala í Las Vegas. Hann hélt því fram að hann hefði verið að reyna að ná aftur minjagripum sem hefði verið stolið af honum.
Hann afplánaði tæp níu ár af þeim dómi og var sleppt árið 2017.