Liverpool vann leik liðanna í Bergamo 1-0 þökk sé vítaspyrnu frá Mohamed Salah snemma leiks en Atalanta vann leik liðanna á Anfield 3-0 og er komið í undanúrslit þar sem það mætir Marseille.
Walking Alone pic.twitter.com/tlqmpyMBZz
— Atalanta BC (@ataalannta) April 18, 2024
„Við spiluðum vel í kvöld og sýndum mikinn baráttuanda. Þetta var framför en raunveruleikinn er sá að við erum fallnir úr leik en þurfum að jafna okkur fljótt þar sem við ferðumst til Lundúna á laugardag.“
„Við gerðum hvað við gátum og fengum tækifærin. Stundum reyndum við að gera hlutina of hratt þar sem allir vildu skora annað og þriðja markið. Allt í allt var þetta ekki nægilega gott. Við erum vonsviknar að vera fallnir úr leik þar sem við vildum virkilega vinna þessa keppni.“
„Við unnum í kvöld og við héldum hreinu svo það er hægt að taka eitthvað jákvætt með sér,“ sagði Van Dijk en Liverpool spilar gegn Fulham á sunnudag.
„Þetta er slæm tilfinning núna en við þurfum að lyfta okkur aftur upp. Við höfum farið í gegnum erfið augnablik saman. Nú er mikilvægast að við sýnum þroska, samheldni og fagmennsku svo við séum klárir á sunnudag því það verður erfiður leikir. Allir þurfa að vera klárir andlega og líkamlega.“
„Við þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup á deildina. Vonandi verður stuðningsfólk okkar þarna með okkur því við þurfum á þeim að halda sem aldrei fyrr því allt er enn hægt,“ sagði Van Dijk að lokum.