Þetta staðfestir Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, í samtali við Vísi. Auk félagsmanna Sameykis hafa félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins samþykkt að hefja aðgerðir á flugvellinum klukkan 16 á fimmtudag. Fyrst um sinn verður um aðrar vinnumarkaðsaðgerðir að ræða en vverkföll en á föstudag mun starfsfólk í öryggisleit leggja niður störf á milli klukkan 04 og 08.
Ljóst er að mikið er undir enda lama verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli nánast allt flug til og frá landinu.
Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við fréttastofu á dögunum að samtökin myndu krefjast þess að aðgerðunum yrði frestað þegar gengið yrði aftur að samningaborðinu.
Deilandi fylkingar koma sem áður segir saman í Karphúsinu klukkan 12 og því má gera ráð fyrir því að sú krafa verði lögð fram.