Þórey er annar einstaklingur sem hlýtur verðlaunin, annars hafa þau verið afhent félagasamtökum eða verkefnum. Einar Þorsteinsson borgarstjóri afhenti í dag Þóreyju Einarsdóttur, mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir ómetanlegt starf hennar í þágu heimilislausra kvenna. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.
Vinnur ómetanlegt og óeigingjarnt starf
Í tilkynningu frá borginni um verðlaunin kemur fram að í tuttugu ár hafi hún unnið störf sín af hógværð og sjaldséðu örlæti án þess að missa nokkurn tímann sjónar á kjarna starfsins: Að standa með og styðja konur sem fátt eiga annað en óvissuna.

„Þórey Einarsdóttir er ein af þeim fjölmörgu konum og fólki sem starfa á bak við tjöldin í almannaheillasamtökum innan borgarinnar, fólk sem vinnur ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu meðborgara sinna og mannréttinda,“ segir í rökstuðningi valnefndar.
Verðlaunin voru veitt í Höfða í dag 16. maí, á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar, og er markmið dagsins að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar. Það var mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð sem samþykkti á fundi sínum að Þórey Einarsdóttir hlyti verðlaunin. Handhafi verðlaunanna hlýtur að launum kr. 600.000,-.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að það væri afar mikilvægt að einstaklingar sem vinna í jafn mikilvægum málaflokki og þessum fái viðurkenningu fyrir að standa vörð um hópa sem eru berskjaldaðir í samfélaginu og eru jaðarsettir. Borgin vinni stöðugt að því í samvinnu við ótal aðila að tryggja að öll fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, og halda ávallt mannréttindum á lofti.
„Takk, Þórey fyrir þitt mikilvæga starf í þágu heimilislausra kvenna og mannréttinda“ sagði borgarstjóri við athöfnina.
Fyrri verðlaunahafar
Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:
Alþjóðahús 2008
Rauði Kross Íslands 2009
Blátt áfram 2010
Hinsegin dagar 2011
List án landamæra 2012
Kvennaathvarfið 2013
Geðhjálp 2014
Frú Ragnheiður 2015
Þórunn Ólafsdóttir 2016
Með okkar augum 2017
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi -W.O.M.E.N. Á Íslandi 2018
Móðurmál – Association of Bilingualism 2019
Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020
Rótin, félag um konur áföll og vímugjafa 2021
Pepp Ísland, grasrót fólks í fátækt 2022
Trans Ísland 2023