Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson bættu sig báðir í 100 metra bringusundi. Þeir unnu líka báðir sinn riðil.
Snorri Dagur synti á tímanum 1:01,66 mín. og var ótrúlega nálægt því að komast í undanúrslit en síðasti tími inn í undanúrslitin var 1:01,36 mín. Snorri átti áður 1:02,23.
Einar Margeir bætti einnig sinn besta tíma í sundinu þegar hann synti á 1:02,39 mín. og varð hann í 31. sæti af 50 keppendum. Besti tími Einars var áður 1:03,77 mín.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti 100 metra skriðsund og kom í mark á tímanum 57,13 sekúndum hún varð í 29. sæti af 42 keppendum . Jóhanna á best 56,78 sek. Hún á eftir að synda 50 metra skriðsund og 50 metra flugsund á mótinu.
Símon Elías Statkevicius synti 50 metra flugsund á tímanum 24,64 sekúndum sem er alveg við hans besta tíma en hann á best 24,45 sek. Símon endaði í 43. sæti af 59 keppendum.
Á morgun mun Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synda 50 metra flugsund, Símon Elías syndir 100 metra skriðsund og Birgitta Ingólfsdóttir syndir 100 metra bringusund.