
Gestir létu veðrið sannarlega ekki trufla sig og fjölmenntu á Jónsmessuhátíðina sem fer árlega fram á Eyrarbakka. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá, veltibíllinn frá Landsbjörg var á staðnum, bílaumboðið Askja var með bílasýningu, Leihópurinn Lotta tróð upp og gestum var ekið um í hestvagni svo fátt eitt sé nefnt.
Lýður Pálsson umsjónarmaður Byggðarsafnsins á Eyrarbakka og Ragna Jónsdóttir, skipuleggjandi Jónsmessuhátíðarinnar mættu í spjall í Bylgjubílinn auk Sóla Hólm.


Hér fyrir neðan má fletta í gegnum fleiri myndir:
Næstu stopp Bylgjulestarinnar:
29. júní – Höfn
6. júlí – Akureyri
13. júlí – Selfoss
20. júlí – Hljómskálagarðurinn í Reykjavík
27. júlí - Hafnarfjörður
Kíktu við og taktu þátt í fjörinu! Gríptu með þér hollustubita frá MUNA, skoðaðu glæsilega bíla frá bílaumboðinu Öskju, svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og sláðu í gegn um land allt með Golfsambandi Íslands og Bylgjulestinni.