Jana heldur uppi heimasíðunni jana.is þar sem hún deilir hinum ýmsu uppskriftum en hér má sjá uppskriftina að matcha bitunum:
Matcha & collagen bitar:
„3 bollar kókosmjöl
1 bolli möndlumjöl
1-2 msk Feel Iceland kollagen duft
1/3 bolli fljótandi kókosolía
1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp
1/2 -1 tsk Gæða Matcha duft
1 tsk vanilla
Smá salt
Allt sett saman í skál og hrært vel saman, má líka nota matvinnsluvél og blandað þar vel saman.
Búið til litlar kúlur og veltið upp úr kókosmjöli, setjið í box og geymið í frysti.
Má líka einfalda og þjappa deiginu á bökunarpappír og frysta, skera svo í litla bita og eiga þannig í frysti.
Þegar mig langar að gera bitana extra fallega þá bræði ég hvítt súkkulaði og dreifi smá yfir áður en ég frysti.“
Hér má svo finna aðra matcha uppskrift frá Jönu af sítrónu matcha-kúlum:

Sítrónu matchakúlur:
„1 og 1/2 dl kókosmjöl
1 og 1/2 dl möndlumjöl
1 tsk vanilla
1/8 tsk af salti
1 tsk matcha te
Rifin börkur af einni sítrónu
1 msk sítrónusafi
3 msk hlynsíróp
3 msk möndlusmjör
Öllu blandað saman í matvinnsluvé, hnoðað í litlar kúlur og sett í frysti.
Geymist vel í allt að 2 mánuði í frysti.“