Stöð 2 Sport
FH fær ÍA í heimsókn í Bestu deild karla og hefst útsending klukkan 19:00.
Leikur Fram og Vals átti einnig að fara fram í dag en honum var frestað vegna erfiðleika Valsmanna að skila sér heim frá Albaníu eftir Evrópuleik í síðustu viku.
Umferðin verður svo gerð upp í Stúkunni sem hefst að leik loknum, klukkan 21:20.
Vodafone Sport
Á Vodafone Sport rásinni verða tveir hafnaboltaleikir í beinni frá Bandaríkjunum. Klukkan 17:00 er það leikur Rays og Yankees.
Við lokum kvöldinu svo með viðureign Tigers og Guardians en sú útsending hefst klukkan 22:30.