„Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Jakob Bjarnar skrifar 29. júlí 2024 16:00 Ástþór og Halla í baráttunni. Ástþór segir ljóst að Halla sé ekki að fara í frí, nú verði hún að láta til sín taka ef ekki á að fara illa. aðsend Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi með meiru rekur Islandus Bíla og hann segir mottó sitt og sinna manna vera það að vera ávallt með ódýrustu bílana. Hann býður ódýrari Volvó, ódýrari en sem nemur því sem Halla Tómasdóttir þurfti að borga fyrir sinn, afslátt sem nemur tveimur milljónum.
Eins og fram hefur komið var Halla Tómasdóttir verðandi forseti og hennar spúsi að kaupa sér Volvo EX 30 í ultra útfærslu með stærri gerð rafhlöðu. Og þau fengu afslátt sem hefur verið upplýst um. Hjá fyrirtæki Ástþórs Magnússonar Islandus Bílum www.islandus.is fá allir landsmenn forsetakjör á bílum, eins bílum og þeim sem Halla var að kaupa. „Islandus Bílar hafa í nær tvo áratugi veitt forsetakjör á bílum til framáfólks í stjórnmálum, viðskiptum og nákvæmlega sömu kjör til alls almennings. Þar er bara alltaf lægsta verð fyrir alla,“ segir Ástþór. Halla hefur hlaupið eitthvað á sig Ástþór segist ætla að bjóða öllum eins bíl og þann sem Halla var að kaupa með sem samsvarar tveggja milljóna króna afslætti miðað við þau kjör sem Brimborg bauð Höllu bílinn á. Hann auglýsir Volvo EX30 á verði allt frá 5,8 millljónum króna. Halla greiddi 7,3 milljónir fyrir Volvo EX30 í ultra útfærslu með betri rafhlöðu. „Það er það sem sparast á því að kaupa bílinn hjá okkur. Islandus er alltaf ódýrast; ráðherrar, listamenn og allskonar mektarfólk hafa ekið um á bílum frá okkur Og almenningur. Alltaf sömu kjörin. Það er ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt alla daga.“ Hér er Ástþór búinn að klippa sig og Höllu út og límir við bókarkápuna. Ástþór vonar að hann hafi komið friðarmálunum á koppinn, á oddinn með Höllu. Nú er að bíða og sjá en hann segir að það verði fylgst grannt með því hvernir hún ætlar að hátta sínum málum. Spurður um hvað honum finnist um loðin svör Höllu um bílaviðskiptin við Brimborg og Egil Jóhannsson forstjóra þar segist Ástþór ekkert ætla að kommenta á það. „Þetta er eitthvað athuganaleysi, hún hefur hlaupið á sig, fólk í svona leiðtogastöðum getur ekki verið að þiggja einhver sérkjör. Ég er ekkert að ætla henni það. Ég myndi aldrei leita eftir sérkjörum sem kjörinn leiðtogi,“ segir Ástþór. Hann segist hafa verið með friðarmálin á oddinum í sínu framboði og nú sé að duga eða drepast. Hreinlega. „Nú er mómentið fyrir Íslendinga að fara að gera eitthvað i þessu. Forsetinn þarf að byrja að vinna að því og ég mun auðvitað fylgjast grannt með hvað hún gerir. Hún er ekki að fara í frí, sko. Hún er að fara að vinna ef það er eitthvað vit í henni.“ Það verður engin Reykjavík, engir Bessastaðir Ástþór vonast til þess að friðarmálin séu komin á oddinn með Höllu en nú þurfi bara að bíða og sjá. Og allt muni þetta koma fram í bók sem væntanleg er um áramótin þar sem Ástþór fer yfir málin og ræðir meðal annars um mótframbjóðendur sína í forsetakosningunum sem eru til þess að gera nýafstaðnar. „Þú ert með brjálað fólk í stjórnarráðinu sem er að setja framtíð þjóðarinnar í stórhættu. Það er við að brjótast út heimstyrjöld. Þetta eru landráð að hafa gert þessa samninga niðrí Úkraínu. Þar er verið að setja Ísland í stórhættu.“ Ástþór svarar spurningunni við því, að því gefnu að Halla hafi ekki kjarkinn, hvort hann muni þá bjóða sig fram aftur að fjórum árum liðnum, með eftirfarandi hætti: „Gefum okkur að hún hafi hann ekki. Þá myndi ég fara að leita mér að húsnæði erlendis. Ég er ekki viss um að það verði nein Reykjavík eða Bessastaðir ef ekki verður gripið í taumana. Allaveganna ekki á þeim stað þar sem þær voru síðast. Þetta er alvarlegt mál sem er að gerast og ég var ekki að grínast með það þegar ég sagði að það þyrfti að handtaka Bjarna Ben þegar hann kom til landsins og lesa fyrir hann hvað landráð eru.“
Forseti Íslands Bílar Vistvænir bílar Innrás Rússa í Úkraínu Halla Tómasdóttir Tengdar fréttir Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum. 26. júlí 2024 16:26 Mest lesið Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Áttræður faðirinn fékk hjartaáfall Innlent Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Innlent Gullbakka stolið á Skólavörðustíg: „Þetta eru galdramenn“ Innlent Ákærður fyrir að reyna að svipta tvo lífi Innlent Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Erlent Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Erlent Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Innlent Lengja opnunartímann aftur Innlent Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Erlent Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Erlent Fleiri fréttir Lengja opnunartímann aftur Ákærður fyrir að reyna að svipta tvo lífi Stefnir í annað metár í frávísunum Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Börn niður í átta mánaða fá inni á leikskóla Jörð skelfur í Ljósufjöllum Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega Öll börn fái leikskólapláss frá 18 mánaða aldri Gullbakka stolið á Skólavörðustíg: „Þetta eru galdramenn“ Frú Vigdís fagnar 95 ára afmæli Stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá því virkni hófst Tveir skjálftar yfir fjórum að stærð í Bárðarbungu Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Áttræður faðirinn fékk hjartaáfall Þjófnaður, rúðubrot og líkamsárás Nemendurnir neita að fara í Tækniskólann Ferðamaður rændur og kortið notað fyrir tæpa milljón Kemur til greina að Ísland sendi fólk til Úkraínu Átján ára með 13 kíló af kókaíni Þrettán kíló af kókaíni í handfarangri og barokk-hátíð í Hörpu „Ekki alveg jafn mikil refsiharka eins og var“ Byggja nýjan leikskóla í Kópavogi Skipar starfshóp um dvalarleyfi Ballið búið í Bláfjöllum í vetur Leitar að rangfeðruðum: „Upplifað alla ævi að þeir tilheyri ekki fjölskyldunni“ Fótboltinn víkur fyrir padel Best að bíða með að birta tásumyndirnar þar til heim er komið Viss um að Netflix vildi myndina en dómurinn féllst ekki á það Skrifstofa forseta Íslands minnt á að hlíta upplýsingalögum Ráðleggur fólki að koma fyrr á völlinn Sjá meira
Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum. 26. júlí 2024 16:26