Búið er að gefa út gula veðurviðvörun fyrir morgundaginn á Suðurlandi sem gildir frá klukkan þrjú um nótt til klukkan tvö um miðjan dag. Veðurstofa Íslands varar við auknum líkum á skriðuföllum á Suðurlandi og Ströndum yfir helgina vegna mikillar úrkomu sem fylgir lægð sem leggst yfir sunnanvert landið.
Reiknað er með að vindhraði muni ná um 20 metrum á sekúndu víða á Suðurlandi og samkvæmt ölduspá verður ölduhæð frá Landeyjarhöfn til Vestmannaeyja allt að þrír metrar.
Telur að sjóveiki muni ekki gera vart við sig
Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir veðrið ekki hafa áhrif á ferðir til Vestmannaeyjar.
„Miðað við þær spár sem við erum að skoða og ölduspár sem kannski skipta mestu máli fyrir siglingar Herjólfs þá munum við bara halda okkar áætlun miðað við þetta og sigla þær ferðir. Sigla bara okkar siglingaráætlun.“
Hörður segir að ölduhæðin þurfi að vera töluvert hærri svo að Herjólfur sigli frá Þorlákshöfn eða ferðum verði aflýst.
Verður þetta erfið ferð fyrir sjóveika?
„Nei ég hef ekki trú á því. Nýi Herjólfur er mjög gott sjóskip og þetta er stutt ferð. Ég held að það verði ekki sjóveiki.“
Festa tjöldin sérstaklega vel
Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir að gripið hafi verið til sérstakra ráðstafanna vegna veðurspárnar og að mikill hugur sé í Eyjamönnum og gestum fyrir 150. Þjóðhátíðina.
„Já bara svona festa niður tjöldin okkar þannig það fari ekki allt á fleygi ferð en eins og ég segi þá er þetta bara spá og þetta getur alveg farið fram hjá.
Þetta verður bara létt, þetta verður bara ljúft. Við höfum séð það miklu verra. Það verður bara skemmtilegt í Herjólfsdal um helgina. Allir skemmta sér bara fallega.“
Fólk megi vera viðbúið öllu
Hann hvetur fólk til að vera viðbúið öllu um helgina og taka með sér hlý og góð föt. Hann segir hátíðina vera þá veglegustu í tilefni stórafmælisins.
„Við erum með mjög veglega dagskrá og erum búin að lengja dagskránna aðeins og svo erum við að rifja upp gamlar hefðir. Við erum með einn bekkjabíl sem var alltaf í gamla daga.“