Sigur Kitaguchi þarf þó ekki að koma neinum á óvart en hún er ríkjandi heimsmeistari í greininni eftir að hafa kastað spjótinu 66,73 metra í Búkarest í fyrra.
Hún tryggði sér sigurinn í kvöld í fyrsta kasti þegar hún kastaði spjótinu 65,8 metra, sem er það lengsta sem hún hefur kastað í ár. Enginn annar keppandi komst nálægt henni í kvöld sem tók aðeins spennuna úr úrslitunum.
Jo-Ane van Dyk frá S-Afríku varð í 2. sæti með kast upp á 63,93 metra og Nikola Ogrodnikova frá Tékklandi varð þriðja með 63,68 metra kast.
The first Japanese woman to win a field event at the Olympics 👏
— World Athletics (@WorldAthletics) August 10, 2024
🇯🇵's Haruka Kitaguchi rules the javelin throw final with 65.80m.
🥈 Jo-Ane van Dyk 63.93m 🇿🇦
🥉 Nikola Orgrodnikova 63.68m 🇨🇿#Paris2024 #Olympics pic.twitter.com/c3oP21XdDx