Lesa má úr skilalista á vef Ríkisendurskoðunar að allir frambjóðendur nema Viktor Traustason og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hafa skilað inn uppgjöri. Frambjóðendum ber að skila inn uppgjöri hafi heildartekjur eða gjöld vegna framboðsins verið umfram 550 þúsund krónur. Hafi frambjóðandi ekki farið umfram þau fjárhæðarmörk þarf ekki að skila inn uppgjöri en frambjóðandi getur skrifað undir rafræna yfirlýsingu þess efnis.
Eiríkur fyrstur en Halla og Katrín síðastar
Samkvæmt svörum Ríkisendurskoðunar við fyrirspurn fréttastofu frá í síðustu viku verða öll uppgjör forsetaframbjóðenda sem borist hafa birt á vef stofnunarinnar þegar þau hafa verið yfirfarin. Ætla má að það verði á næstu dögum. Síðastar til að skila inn uppgjöri sínu samkvæmt yfirliti Ríkisendurskoðunar voru Halla Tómasdóttir sem endaði uppi sem sigurvegari og Katrín Jakobsdóttir sem hlaut næst mest fylgi í kosningunum. Báðar skiluðu þær uppgjöri sínu þann 2. september sem var lokadagur skila. Fyrstur til að skila uppgjöri var hins vegar Eiríkur Ingi Jónsson.

Um miðjan ágúst sendi framboðsteymi Katrínar ákall til stuðningsmanna hennar þar sem kallað var eftir aðstoð til að loka gatinu við uppgjörið. „Nú erum við á lokametrunum við að gera upp framboðið og það vantar herslumuninn til að loka gatinu. Við leitum því til ykkar - ef þið eruð aflögufær og getið hjálpað með því að leggja inn á framboðið væri það afar þakklátt. Við erum mörg hér inni og þetta er fljótt að koma þegar fjöldinn tekur sig til,” var ritað í færslu í stuðningsmannahópi Katrínar á Facebook. Katrín greindi frá því í aðdraganda kosninga að hún gerði ráð fyrir að barátta hennar myndi kosta allt að 40 milljónir.
Í kosningabaráttunni voru allir frambjóðendur spurðir um hvað þau gerðu ráð fyrir að eyða í kosningabaráttunni og hvernig hygðust afla fjár. Hvorki Steinunn Ólína né Viktor Traustason sögðust gera ráð fyrir að eyða miklum peningum í baráttuna. „Nei, ég er ekki að fara að biðja neinn um pening,“ sagði Viktor Traustason meðal annars í kappræðum á Rúv í byrjun maí. Í sömu kappræðum sagði Steinun Ólína að hennar framboð hafi þá eytt um það bil 400 þúsund krónum.