Vísa átti Yazan og fjölskyldu hans úr landi í gær en Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra fyrirskipaði að fresta ætti flutningi hans. Það gerði hún að beiðni Guðmundar Ingi Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra og formanni VG.
Jafnvel hættulegt að flytja Yazan núna
Stefán Már Gunnlaugsson formaður Duchenne á Íslandi segir hættulegt fyrir Yazan að ferðast til Spánar.
„Yazan á heima hér,“ segir Stefán Már spurður um kröfu mótmælenda. Að hann fái að vera hér, eiga heima hér og fá þjónustu hér.
„Það verður rof á þjónustu ef hann verður fluttur til Spánar,“ segir Stefán og að það rof gæti varað í allt að nokkra mánuði.
Fyrir barn í hans stöðu, með alvarlegan vöðvarýrnunarsjúkdóm, sé það jafnvel hættulegt.
Hvað varðar þjónustuna sem Yazan þarf á Spáni segir Stefán allt líta vel út á blaði. Staðan sé samt sú að Yazan og fjölskylda hans eru ekki með alþjóðlega vernd þar heldur eiga eftir að fara í gegnum umsóknarferlið þar.
Um tvö hundruð manns mótmæla við Hverfisgötu þar sem ríkisstjórnin fundar núna. Mál Yazans er eitt þeirra sem er á dagskrá. Stefán segir mál hans snerta okkur öll. Fólk vilji meiri mannúð en samt reki kerfið 11 ára dreng í hjólastól úr landi.
„Við viljum þetta ekki,“ segir Stefán.
Sólveig Arnarsdóttir leikkona er ein þeirra sem mótmælir við Hverfisgötuna. Hún segir íslenskum stjórnvöldum ekki skylt að senda Yazan til Spánar. Dyflinnarreglugerðin sé viðmið en ekki lög. Hún segir Yazan andlega og líkamlega kominn að þolmörkum sínum en eins og fram hefur komið er Yazan með Duchenne-heilkennið.
„Hann á heima hér og hér á hann að vera,“ segir Sólveig í samtali við fréttamann okkar á staðnum.
Askur Hrafn Hannesson aðgerðarsinni er meðal mótmælenda fyrir utan ríkisstjórnarfund. Kröfurnar eru þær að Yazan og fjölskylda fái alþjóðlega vernd.
„Ég held að alþjóð ætti að vita núna að það bíður þeirra ekkert á Spáni. Þau eru ekki með dvalarleyfi og vegabréfsáritunin þeirra þar rennur út efitt 20 daga. Þau munu ekki hafa aðgang að aviðeigandi læknisþjónustu,“ segir Askur og það hafi verið færð rök fyrir því, af læknum, að brottvísunin muni stytta líf hans.
Meðalaldur þeirra sem ekki fái þjónustu sé 19 ár. Askur segir að ríkisstjórnin eigi að axla ábyrgð á þessu.
Hann segir mótmælendur nota söng til að reyna að ná til ríkisstjórnarinnar en mótmælendur hafa sungið Vikivaka, Smávini fagra, Myndina hennar Lísu og Maístjörnuna. Þess á milli hrópa þau „Yazan á heima hér. Öll börn eru okkar börn,“ hrópa mótmælendur fyrir utan fund ríkisstjórnarinnar.
Bein útsending frá mótmælum
Bein útsending er frá fundi ríkisstjórnarinnar og hægt að fylgjast með hér að neðan. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður Stöðvar 2 er á staðnum og tekur mótmælendur tali.